Rue de Net
Rue de Net
Rue de Net

Forritari hjá Rue de Net

FRAMÚRSKARANDI FORRITARI VEFA OG SAMÞÆTTINGA

Vegna aukinna verkefna og umsvifa leitum við að metnaðarfullum og drífandi einstaklingum til þess að starfa með okkur. Ef þú hefur áhuga á að vinna á líflegum vinnustað, í framlínu tæknibreytinga og takast á við spennandi verkefni þá erum við að leita að þér.

Rue de Net er hugbúnaðarhús í upplýsingatækni sem aðstoðar framúrskarandi fyrirtæki við val og innleiðingu á viðskipta- og verslunarlausnum. Rue de Net er á fullri ferð með viðskiptavinum sínum úr skápnum í skýið, með því að bjóða nýjustu tækni, gæðavörur og persónulega þjónustu.

Rue de Net býður upp á frábært vinnuumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og starfsaðstöðu á besta stað í bænum. Hjá Rue de Net munt þú starfa í hópi sérfræðinga sem nálgast verkefni sín með þekkingu, fagmennsku og samvinnu að vopni. Þú færð fjölbreytt og krefjandi verkefni og tækifæri til að nota framsýni, nýsköpun og gæði til að gera einhver bestu fyrirtæki landsins enn betri.

Í starfi hjá okkur ertu að fara að…

  • Forrita bæði í vöruþróun og þjónustu
  • Forrita vefi og vefverslanir í Microsoft .NET (C#)
  • Forrita samþættingu, bæði SOAP, REST og Azure Service Bus
  • Forrita fyrir NopCommerce, WooCommerce og Shopify
  • Nota ASP.NET, .NET Core, C#, Microsoft SQL, JQuery ofl.
  • Eiga samskipti við og þjónusta framúrskarandi viðskiptavini

Ef þú hefur…

  • Tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilega menntun
  • Hæfni og vilja til að setja þig inn í ný kerfi og læra nýja hluti
  • Samskiptahæfileika og góða þjónustulund
  • Getu til að vinna sjálfstætt og í hóp
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð
  • Reynslu af sambærilegu starfi þá er það kostur

…þá hvetjum við þig til að fylla út umsókn með ferilskrá á www.intellecta.is.

Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2022.

Frekari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]), Henrietta Þóra Magnúsdóttir ([email protected]) og Torfi Markússon ([email protected]) ráðgjafar hjá Intellecta í síma 511-1225. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt20. júlí 2022
Umsóknarfrestur10. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.WooCommercePathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar