

Vefforritari
Stefna hugbúnaðarhús leitar að öflugum vefforritara til að slást í hóp öflugs teymi forritara. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf á sviði hugbúnaðarþróunar. Leitum að starfsmanni sem er lausnamiðaður, góður liðsmaður, með ríka þjónustulund og fljótur að tileinka sér nýja hluti. Starfsstöð getur verið hvort sem er á Akureyri eða í Kópavogi.
Stefna hugbúnaðarhús sérhæfir sig í stafrænan lausnum fyrirtækja, opinberra stofnana, sveitarfélaga og félagasamtaka.
Hjá Stefnu starfar teymi sérfræðinga í öllu sem viðkemur hugbúnaðargerð; greining, hönnun, vefun og forritun. Við erum sveigjanleg og útsjónarsöm, setjum okkur vel inn í þarfir viðskiptavina, finnum lausn sem hentar hverju sinni og höfum það að markmiði að uppfylla þarfir þeirra sem gera kröfur.
Viðskiptavinir Stefnu skipta hundruðum og er þar á meðal að finna nokkur af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins.
Stefna er með skrifstofur bæði á Akureyri og í Kópavogi, og þar vinnur samhentur hópur sérfræðinga sem hefur áhuga á öllu sem kemur að hugbúnaði. Við viljum að okkar fólki líði vel í vinnunni og því skiptir það okkur máli að skapa faglegt og traust starfsumhverfi.











