![Monkeys Food and Wine](https://alfredprod.imgix.net/logo/2565ff09-358d-4064-b81a-2f45543074bc.png?w=256&q=75&auto=format)
Monkeys Food and Wine
Monkeys er staðsettur við Klapparstíg 28-30 í Hjartagarðinum. Gengið er inn í hlýlegt, litríkt og spennandi umhverfi þar sem gestir geta notið framandi matar.
Staðurinn er smáréttastaður með mikið úrval framandi rétta sem eru undir áhrifum frá Perú og Japan. Mikil áhersla er á gott úrval léttvína í glasatali og þá sér í lagi freyðandi vín frá öllum heimshornum ásamt frábærum kokteilum.
Nikkei matreiðsla er heiti á matargerðinni sem ræður ríkjum á staðnum. Hún á uppruna sinn að rekja til seinni hluta 19. aldar þegar japanskir innflytjendur hófu að setjast að í Perú í töluverðum mæli. Þar blönduðust aldagamlar matreiðsluaðferðir frá Japan saman við fjölbreytta matarkistu Perú. Nikkei matreiðsla sameinar það besta úr hvorri matargerð s.s. virðingu fyrir hráefninu og samsetningu framandi bragðtegunda. Þannig voru japanskir réttir tengdir bragði og eldunaraðferðum frumbyggja í Perú á aðdáunarverðan hátt. Þessi blanda felur í sér það besta úr glæsilegri og fíngerðri matarmenningu Japana ásamt afburða fersku hráefni blandað kryddtöfrum frá Perú.
Vaktstjóri í sal
Veitingastaðurinn Monkeys leitar að metnaðarfullum og drífandi vaktstjóra í sal í fullt starf.
Mikil þjónustulund og reynsla af þjónustu á veitingastað er skilyrði.
Íslenskukunnátta er skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórn á vakt og þjónustu í sal
- Vaktaskipulag
- Símsvörun og tölvupóstsamskipti vegna skipulagningu á bókunum
- Innkaup á drykkjarvörum
- Þjálfun starfsfólks
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í framreiðslu er kostur
- Miklir skipulags og leiðtogahæfileikar
- Góð hæfni í ensku
Auglýsing stofnuð29. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
Staðsetning
Klapparstígur 28, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
LeiðtogahæfniMannleg samskiptiMetnaðurSamskipti með tölvupóstiVaktaskipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
![Íslandshótel](https://alfredprod.imgix.net/logo/09dfa03f-d1bc-4dd1-aec5-11dde5aa1907.png?w=256&q=75&auto=format)
Veitingastjóri | Food and Beverage Manager
Íslandshótel
![Spice Grill ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-990706e3-2e26-464c-968b-a8d3fac6af67.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Chef, Chef Assistant, Restaurant Waiters
Spice Grill ehf.
![Potturinn og Pannan](https://alfredprod.imgix.net/logo/2fc92a0f-e03c-477d-93c1-eb6111b0504e.png?w=256&q=75&auto=format)
Full time waiter (with accommodation in Reykjavík).
Potturinn og Pannan
![Kvíslarskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/9455581b-1d02-4f9a-aad3-672fcba2dc41.png?w=256&q=75&auto=format)
Aðstoðarmatráður í Kvíslarskóla
Kvíslarskóli
![The Reykjavik EDITION](https://alfredprod.imgix.net/logo/c5e06a2f-abd4-4242-9656-3d13f8e1323b.png?w=256&q=75&auto=format)
Assistant Restaurant Manager
The Reykjavik EDITION
![Center Hotels](https://alfredprod.imgix.net/logo/e504451e-367f-4e45-9e9b-e4cbb73f8874.png?w=256&q=75&auto=format)
Veitingastjóri óskast
Center Hotels
![Hnoss restaurant & bar](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-2a0313c1-e8d2-4125-a473-4c82c0ee74d9.png?w=256&q=75&auto=format)
Þjónn/Barþjónn hlutastarf
Hnoss restaurant & bar
![Olís ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/84362649-d242-4d78-8507-ef9ccb8cec20.png?w=256&q=75&auto=format)
Vaktstjóri hjá OIís Dalvík
Olís ehf.
![Risið Vínbar](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-ca6e0a27-719e-414e-b315-8e89be58d1b4.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Vaktstjóri
Risið Vínbar
![Grillhúsið ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/70738441-2376-4b19-95d7-21c8adb26156.png?w=256&q=75&auto=format)
Veitingastjóri
Grillhúsið ehf
![Deplar Farm - Eleven Experience](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-3ab74c7f-e260-45f7-985e-3f708df2705b.png?w=256&q=75&auto=format)
Assistant Lodge Manager
Deplar Farm - Eleven Experience
![LYST](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-b307c57b-8cc3-4111-ae8c-ee9cd8b2180c.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Veitingastjóri LYST
LYST