
Sjóvá
Sjóvá leitast við að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar að sér metnaðarfullt og hæft starfsfólk og skapar starfsmönnum tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
Hjá okkur starfa um 200 manns, þar af um 170 í höfuðstöðvum okkar í Kringlunni 5 en Sjóvá er með útibú víðsvegar um landið. Meðalstarfsaldur er 10 ár og margir búa að langri og víðtækri starfsreynslu meðan aðrir eru að hefja sinn starfsferil með okkur.
Fyrirtækjamenning okkar einkennist af mikilli þjónustulund, fagmennsku og samheldni, í bland við keppnisskap og vináttu. Við leggjum áherslu á góð samskipti við viðskiptavini og hvert annað og höfum vegvísana okkar Við sýnum umhyggju, við byggjum á þekkingu, við erum kvik og við einföldum hlutina sem okkar leiðarljós í öllum samskiptum.

Útibússtjóri í Reykjanesbæ
Ert þú drífandi leiðtogi með brennandi áhuga á þjónustu og sölu?
Við leitum að kröftugum stjórnanda til að leiða útibú okkar í Reykjanesbæ. Í boði er spennandi starf fyrir metnaðarfullan aðila og frábært tækifæri til að starfa með öflugu teymi sérfræðinga og stjórnenda um allt land.
Helstu verkefni og ábyrgð
- umsjón og ábyrgð á rekstri útibúsins
- ráðgjöf og þjónusta vegna sölu trygginga og umsýslu tjóna
- viðhald og uppbygging viðskiptatengsla á svæðinu
- að tryggja framúrskarandi þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki
Menntunar- og hæfniskröfur
- háskólamenntun sem nýtist í starfi
- reynsla á sviði stjórnunar
- þekking og reynsla af þjónustu á svæðinu
- frumkvæði, skipulagshæfileikar og mikil þjónustulund
Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 36, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Almenn skráning
Capacent ehf

Sviðsstjóri þjónustusviðs
BRÚ Lífeyrissjóður

Forstöðumaður reikningshalds
Ásar

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Útibússtjóri Íslandsbanka á Ísafirði
Íslandsbanki

Forstöðumaður Executive MBA náms í viðskipta- og hagfræðideild
Háskólinn í Reykjavík

Deildarstjóri frístundastarfs
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Framkvæmdastjóri
Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ)