Urriðaholtsskóli auglýsir eftir leikskólakennara á leikskóla
Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir leikskólakennurum til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi. Á næsta skólaári verða um 190 leikskólabörn á 8 deildum frá eins til 5 ára. Teymiskennsla er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Góð samskiptahæfni
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði og góð samskiptahæfni
- Vera tilbúinn að fylgja stefnu skólans, að vinna með öðrum og um leið búa yfir frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Fríðindi í starfi
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
- 0,25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 0,5% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Auglýsing birt22. október 2024
Umsóknarfrestur4. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Vinastræti 1-3
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur
Kringlumýri frístundamiðstöð
Stuðningsfulltrúi Smáraskóla
Smáraskóli
Leiðbeinandi - Leikskólinn Aðalþing
Aðalþing leikskóli
Starfskraftur í frístundastarf Hjallastefnunnar í Garðabæ
Hjallastefnan
Laust starf í leikskólanum Funaborg
Leikskólinn Funaborg
Þroskaþjálfi eða einstaklingur með sambærilega menntun og/eða reynslu
Víkurskóli
Lausar stöður leikskólakennara
Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla
Leikskólakennari óskast í Krikaskóla
Krikaskóli
Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast
Leikskólinn Árborg, Reykjavík
Stuðningsfulltrúar óskast við Sjálandsskóla
Garðabær
Sjálandsskóli auglýsir eftir forfallakennara
Garðabær
Deildarstjóri óskast
Álfatún