Leiðbeinandi - Leikskólinn Aðalþing
Lífsglaður
og samviskusamur starfsmaður óskast til skapandi og skemmtilegra starfa við leikskólann Aðalþing
Leikskólinn Aðalþing í Kópavogi, hefur vakið athygli fyrir margskonar þróunarstarf og skemmtilega nýbreytni sem starfsfólk og börn hafa staðið að í sameiningu. Skólinn hlaut Íslensku menntaverðlaunanna 2021 og Orðsporið 2022.
Við gætum vel hugsað okkur að fá til liðs í þetta mikilvæga verkefni, starfsmann með háskólamenntun eða stúdentspróf. Fólk með aðra menntun kemur einnig til greina.
Mikilvægt er að skilja íslensku og geta tjáð sig á íslensku.
Karlar, jafnt sem konur, eru hvött til að sækja um starf með okkur en nú þegar er hátt hlutfall karlmanna starfandi við skólann.
Við viljum við ráða starfsmann sem fyrst. Upplýsingar veitir Hörður leikskólastjóri í síma 5150930 eða á netfanginu hordur@adalthing.is
- Starfa að uppeldi í samræmi við starfslýsingu undir stjórn deildaarstjóra
- Háskólamenntun eða stúdentspróf eru mikils virði.
- Mikilvægt er að skilja íslensku og geta tjáð sig á íslensku.
- Frír hágæðamatur í hádegi, fyrir allar gerðir af mataræði, vegan eða hinsegin...