Starfsmaður - Kletturinn
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til starfa í Klettinn. Kletturinn er frístundaklúbbur fyrir börn og ungmenni með fatlanir í 5-10 bekk. Þar upplifa þau hinar ýmsu tómstundir og félagskap með öðrum ungmennum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi hlutastarf á virkum dögum milli kl. 13 og 17 sem hentar vel skólafólki.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita ungmennum stuðning við athafnir daglegs lífs.
- Fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum.
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd.
- Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda.
- Stuðla að velferð og félagslegum þroska ungmennanna.
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntun- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
- Frumkvæði og samviskusemi.
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
- Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
- Íslenskukunnátta skilyrði.
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Geir Bjarnason, geir@hafnarfjordur.is, 664-5754 eða Sandra Björk Halldórsdóttir, sandrabjork@hafnarfjordur.is, 664-5547.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 29. október 2024
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins