
Hólabrekkuskóli
Mikil gróska einkennir Hólabrekkuskóla og áhersla er lögð á skapandi starf, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti. Leiðarljós skólans er virðing, gleði og umhyggja. Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með tæplega 500 nemendur og 70 starfsmenn.
Umsjónarmaður fasteigna
Hólabrekkuskóli auglýsir eftir umsjónarmanni fasteignar í 100% starfshlutfall. Staðan er laus og er tímabundin til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Umsjónarmaður fasteignar hefur umsjón með húsnæði skólans, daglegum þrifum, viðhaldi o.fl. Næsti yfirmaður er skólastjóri.
Ef þú hefur áhuga á að starfa á skemmtilegum vinnustað og vera leiðandi í jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur. Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. - 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og 80 starfsmenn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar nemendur og starfsfólk skólans.
- Umsjón með skólahúsnæði og skólalóð. Er tengiliður við aðila sem koma að viðhaldi og endurnýjun húsnæðis, áhalda og tækja.
- Ber ábyrgð á framkvæmd þrifa. Er yfirmaður skólaliða og skipuleggur störf þeirra.
- Þátttaka og aðstoð í mötuneyti. Sér um innkaup, ýmsa áætlanagerð, öryggismál o.fl.
- Sér um að húsnæðið sé opið við upphaf skóladags og ber ábyrgð á frágangi húsnæðis við lok skóladags. Er til taks við ýmis konar viðburði á vegum skólans.
- Aðstoðar við ýmis verkefni á skrifstofu skólans. •
- Önnur verkefni sem skólastjóri felur umsjónarmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar og sveigjanleiki í samskiptum.
- Iðn- eða háskólamenntun og/eða reynsla og hæfni sem nýtist í starfi.
- Tölvufærni í xcel, word o.fl.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Stundvísi og samviskusemi.
- Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum.
Auglýsing birt8. maí 2025
Umsóknarfrestur22. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Bakkastaðir 2, 112 Reykjavík
Suðurhólar 10, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bifvélavirki / Mechanic - Summer job (May - Oct)
Lotus Car Rental ehf.

Húsasmiður með reynslu óskast
Stéttafélagið ehf.

Smiður óskast eða verkamaður í byggingariðnaði
Tóm Tjara

Starfsmaður í Garðskáladeild
Jón Bergsson

Hreinsitækni leitar að verkstjóra á Reyðarfirði
Hreinsitækni ehf.

Viðhaldsfulltrúi
Alma íbúðafélag

Bílaumsjónarmaður
MAX1 | VÉLALAND

Verkefnastjóri - Reyðarfjörður
VHE

Sölustjóri CAT Lyftara og vöruhúsalausna
Klettur - sala og þjónusta ehf

Stálreisingarverkstjóri
Ístak hf

Fasteignaumsjón
Veritas

Viðskiptastjóri hjá Kríta með áherslu á byggingariðnað
Kríta