
Hreinsitækni ehf.
Hreinsitækni ehf., er leiðandi fyrirtæki á sviði sópunar og þvotta á gatnakerfum og gönguleiðum. Félagið var stofnað árið 1976 og hefur starfað óslitið síðan.
Í upphafi árs 2007 keypt félagið Holræsahreinsun ehf. og sameinaði félögin undir nafni Hreinsitækni ehf. Holræsahreinsun ehf. var elsta og öflugasta fyrirtækið á sviði holræsahreinsunar og tengdrar þjónustu. Holræsahreinsun ehf. var stofnað árið 1982, en breytt í hlutafélag árið 1987. Á þeim árum kappkostaði félagið að fylgja eftir þeirri öru þróun sem orðið hafði í starfseminni og eins að vera með bestu og nýjustu tækin til að takast á við hvaða verk sem er og á sem hagkvæmastan hátt.
Í lok árs 2007 keypti félagið Uppdælingu ehf. og sameinaði félögin undir nafni Hreisnitækni ehf. í byrjun árs 2008. Uppdæling ehf. hafði séð um söfnun úrgangsolíu frá verkstæðum, skipum ofl. Einnig hreinsun olíutanka og flutningi á hvers konar spilliefnum. Uppdæling ehf hafði boðið upp á þessa þjónustu allt frá árinu 1993.
Með sameiningu þessara þriggja fyrirtækja er tækjafloti Hreinsitækni ehf. sá öflugasti sem til er á Íslandi í dag. Flotinn er mjög nýlegur og sambærilegur við það besta sem í boði er hvar sem er í heiminum. Hreinsitækni ehf. er nú komið með þá þekkingu og tæki til að geta boðið einstaklingum, fyrirtækjum, sveitar- og bæjarfélögum heildarlausnir í þjónustu á fráveitukerfum og hreinsun á gatna- og gönguleiðum. Starfsmenn félagsins búa yfir víðtækri reynslu og eru fastráðnir um 40.
Hreinsitækni ehf. er með skýra umhverfisstefnu og leggur mikla áherslu á að nota eingöngu umhverfisvæn efni við öll þrif. Á það við hvort sem er þrif á spilliefnum eða almennum og reglubundnum þrifum á gatnakerfum, byggingum ofl

Hreinsitækni leitar að verkstjóra á Reyðarfirði
Hreinsitækni leitar að verkstjóra
Við leitum að sjálfstæðum og reyndum verkstjóra til að sinna fjölbreyttum verkefnum í starfsstöð okkar hjá Alcoa á Reyðarfirði. Um er að ræða dagvinnu og framtíðarstarf.
Við leitum af einstaklingi sem er til í að ganga í öll verkefni af áræðni. Hefur góða þekkingu á starfssemi stóriðju. Reynsla af verkstjórn er nauðsynleg ásamt því að hafa góða skipulagshæfni sem nýtist í starfi.
Helstu verkefni
- Fjölbreytt verkstjórn
- Samskipti við viðskiptavini og birgja
- Umsjón með starfsfólki í verkefni
- Samhæfing verkefna með svæðisstjóra
- Umsjón með viðhaldi tækja í samráði við svæðisstjóra
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Reynsla af verkstjórn
- Grunn tölvukunnátta
- Rík þjónustulund
- Góða samskiptafærni
- Gott vald á íslensku og ensku
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og lausnarmiðuð hugsun
- Öryggisvitund
- Að geta unnið undir álagi
Menntunarkröfur
- Ökuréttindi B
- Vinnuvélaréttindi - er kostur
- Meiraprófsréttindi – C er kostur
Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur9. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Alcoa Fjarðarál
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í áhaldahús
Borgarbyggð

Stálreisingarverkstjóri
Ístak hf

Verkefnastjóri - Reyðarfjörður
VHE

Viðskiptastjóri hjá Kríta með áherslu á byggingariðnað
Kríta

General road construction workers and painters needed.
BS Verktakar

Verkstjóri í frysti og kæligeymslu Aðfanga
Aðföng

Verkstjóri vélsmiðju
Slippurinn Akureyri ehf.

Flokkstjóri við Vinnuskóla
Sumarstörf - Kópavogsbær

Staðarstjóri (e. field area manager)
Enercon

Verkstjóri í vinnuskóla
Sveitarfélagið Vogar

Verkstjóri á verkstæði Íslyft í Kópavogi
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Leggðu línuna til Rarik - verkstjóri á Snæfellsnesi
Rarik ohf.