Hvassaleitisskóli
Hvassaleitisskóli

Umsjónarkennari í 6. bekk Hvassaleitisskóla

Viltu vinna í skemmtilegum og fjölbreyttum starfsmannahópi?

Ef svo er þá er Hvassaleitisskóli að leita eftir metnaðarfullum umsjónarkennara í fyrsta bekk sem brennur fyrir velferð nemenda og framsæknu skólastarfi.

Í Hvassaleitisskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Í hverjum árgangi eru tveir námshópar sem tveir umsjónarkennarar bera sameiginlega ábyrgð á. Við hvetjum til fjölbreyttra vinnubragða og leggjum áherslu á teymisvinnu. Samvinna kennara miðar að því að skapa metnaðarfullt námsumhverfi þar sem hver og einn nemandi fær sín notið.

Skólinn er leiðsagnarnámsskóli og starfar eftir agastefnunni “Jákvæður agi”. Á yngsta stigi er kennt eftir aðferðum Byrjendalæsis og á miðstigi eftir aðferðum Læsi fyrir lífið. Í skólanum er starfandi einhverfudeild sem gengur undir nafninu Meistaradeild og fléttast starfið þar inn í allt skólastarfið.

Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • annast kennslu og umsjón á miðstigi
  • vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • vinna samkvæmt stefnu skólans
  • vinna í teymi með öðru starfsfólki
  • önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina yngsta stigs
  • áhugi á að starfa með börnum
  • lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • ábyrgð, stundvísi og samviskusemi
  • íslenskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið
  • skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • menningar- og bókasafnskort
  • samgöngustyrkur
  • sundkort
  • heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt15. maí 2025
Umsóknarfrestur29. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Stóragerði 11A, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar