Umsjónarkennari – Hvaleyrarskóli
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stigi. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst.
Í Hvaleyrarskóla eru um 400 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, markvissar málörvunar og byrjendalæsis ásamt áherslu á skák- og sviðslistir/danskennslu.
Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta stigi og lestrarkennslu
Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Mjög góð íslenskukunnátta
Lipurð og jákvæðni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor
Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast almenna kennslu á yngsta stigi í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk með áherslu á teymisvinnu.
Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Vinna samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni