Seljaskóli
Seljaskóli
Seljaskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Seljaskóla

Laus er til umsóknar 100% tímabundin staða umsjónarkennara á yngsta stigi í Seljaskóla veturinn 2026-2027.

Seljaskóli við Kleifarsel er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk í efri hluta Seljahverfis. Þar sækja rúmlega 670 nemendur skóla og við hann starfa um 100 starfsmenn. Starfið byggir á grunngildum skólans, samvinnu- ábyrgð- trausti – og tillitssemi og er skólastarf sem stuðlar að vellíðan nemenda og starfsmanna (SÁTT). Sérstök áhersla er lögð á félagsfærni og sjálfseflingu í anda Menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast. Allt starf Seljaskóla byggir á teymisvinnu og vinnur kennarateymi saman að kennslu árgangs, þróun skólastarfs og samvinnu við foreldra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla í samráði við skólastjórnendur og viðkomandi teymi.
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum. 
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. 
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Hæfni og áhugi á að vinna með öðrum. 
  • Góð kunnátta í íslensku skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað, a.m.k. C1 samkvæmt Samevrópska matsrammanum
  • Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi. Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu. 
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Menningarkort-bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kleifarsel 28, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar