Seljaskóli
Seljaskóli
Seljaskóli

Náttúrufræðikennari í unglingadeild í Seljaskóla

Laus er til umsóknar 100% tímabundin staða náttúrfræðikennara í unglingadeild með umsjón í Seljaskóla veturinn 2026-2027.

Seljaskóli við Kleifarsel er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk í efri hluta Seljahverfis. Þar sækja rúmlega 670 nemendur skóla og við hann starfa um 100 starfsmenn. Starfið byggir á grunngildum skólans, samvinnu- ábyrgð- trausti – og tillitssemi og er skólastarf sem stuðlar að vellíðan nemenda og starfsmanna (SÁTT). Sérstök áhersla er lögð á félagsfærni og sjálfseflingu í anda Menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast.

Allt starf Seljaskóla byggir á teymisvinnu og vinnur kennarateymi saman að kennslu árgangs, þróun skólastarfs og samvinnu við foreldra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla í samráði við skólastjórnendur. 
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Heldur utan um nám- og kennslu í náttúrufræði á unglingastigi. 
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Reynsla af náttúrufræðikennslu er æskileg.
  • Þekking á náttúrufræði er mikilvæg. 
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Hæfni og áhugi á að vinna með öðrum. 
  • Góð kunnátta í íslensku skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað, a.m.k. C1 samkvæmt Samevrópska matsrammanum.
  • Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi. 
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum og samstarfi
  • Heiðarleiki og stundvísi
Fríðindi í starfi
  • Menningarkort-bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kleifarsel 28, 109 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar