Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Umsjón­ar­kennari á yngsta stigi – Bíldu­dals­skóli

Viltu slást í hóp starfs­manna sem hafa starfs­gleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leið­ar­ljósi? Meðal áherslna Bíldu­dals­skóla er faglegt lærdóms­sam­félag, einstak­lings­miðað nám, leið­sagn­arnám og samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfinu.

Um er að ræða 100% staða kennara með sérhæfða hæfni í kennslu á yngsta stigi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Lilja Rut Rúnarsdóttir, skólastjóri og tekur hún á móti umsóknum, [email protected]. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótum á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni á yngsta stigi grunnskóla
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa með börnum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
  • Reynsla af teymisvinnu kostur
  • Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt30. júní 2025
Umsóknarfrestur6. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalbraut 2, 465 Bíldudalur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar