
Salaskóli
Salaskóli er staðsettur í Salahverfi, í Leirdal, sem liggur norðan við Rjúpnahæð. Skólinn býr við afbragðsgóða aðstöðu. Húsnæði skólans er hlýlegt og gott og skólinn er vel búinn kennslugögnum og tækjum. Við hlið skólans er íþróttamiðstöðin Versalir og þar eru íþróttasalir og sundlaugar sem skólinn hefur afnot af.
Umhverfi skólans er fjölbreytt og gefur mikla möguleika til fjölbreyttrar kennslu. Skammt frá skólanum er útivistarsvæði sem er notað í útikennslu og einnig er stutt í bæði Elliðavatn og Vífilstaðavatn. Skólalóðin er hönnuð með tilliti til útikennslu en hún er fjölbreytt með völlum og leiktækjum.
Einkunnarorð skólans eru vinátta, virðing og samstarf en allt starf skólans tekur mið af þeim.

Stærðfræðikennari á unglingastig í Salaskóla
Við leitum að góðum stærðfræðikennara í okkar frábæra starfslið í Salaskóla.
Í skólanum eru góður starfsandi og gott starfsumhverfi. Kennarar vinna saman í teymisvinnu við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu.
Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í skólastarfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og verða nemendur um 500 í 1. til 10. bekk á næsta skólaári. Hjá skólanum starfa um 100 starfsmenn.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjónarkennari í 10. bekk í öflugu þriggja manna kennarateymi og stærðfræðikennsla í 8.-10. bekk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
- Framhaldsmenntun með áherslu á stærðfræðikennslu æskileg.
- Reynsla í kennslu stærðfræði á unglingastigi æskileg.
- Frumkvæði og skapandi hugsun við þróun verkefna og aðlögun að ólíkum nemendahópum.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, faglegur metnaður og sveigjanleiki í að takast á við fjölbreyttar aðstæður.
- Sterk samskiptahæfni og færni í að mynda jákvæð tengsl við nemendur og samstarfsfólk.
- Þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni sem nýtist gagnvart fjölbreyttum nemendahópi og í teymisvinnu.
- Góð teymisfærni og áhugi á að vinna þverfaglega með öðrum kennurum og starfsfólki skólans með velferð nemenda að leiðarljósi.
- Skipulagshæfni, ábyrgð og stundvísi.
- Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans, leggja sitt af mörkum í skólaþróun og taka virkan þátt í teymiskennslu og samstarfi innan skólasamfélagsins.
- Geta til að kenna á íslensku og eiga samskipti við nemendur og samstarfsfólk á íslensku.
Auglýsing birt26. júní 2025
Umsóknarfrestur10. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Versalir 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiÞolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Hraunmeistari | Lava Master Part Time-Reykjavik
Lava Show

Þroskaþjálfi - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á yngsta stigi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennari í sérdeild - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á miðstig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Landakotsskóli auglýsir stöðu umsjónarkennara
Landakotsskóli

Leikskólinn Ásar - starfsfólk óskast
Hjallastefnan leikskólar ehf.

Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Arnarberg
Hafnarfjarðarbær

Mýrarhúsaskóli auglýsir stöður kennara.
Seltjarnarnesbær

Deildarstjóri stoðþjónustu/sérkennari - Mýró
Seltjarnarnesbær

Viltu bætast í stjórnendateymið okkar ?
LFA ehf.