Umboðsmaður á Reykjanesbæ
Póstdreifing óskar eftir að ráða umboðsmann á Reykjanesbæ
Póstdreifing er dreifingarfyrirtæki sem dreifir dagblöðum, tímaritum, fjölpósti og ýmsu öðru dreifingarefni. Fyrirtækið keppir að því að vera í forystu á sviði dreifingar með því að bjóða víðtæka og áreiðanlega þjónustu á góðu verði.
Starfslýsing:
Starfið felur í sér móttöku og dreifingu á Morgunblaðinu til áskrifenda, ýmsum blöðum og tímaritum auk tilfallandi bréfapósts á Reykjanesbæ fyrir klukkan 7 á morgnanna.
Umboðsmaður getur verið verktaki eða launþegi, annast dreifingu sjálfur eða ráðið til sín starfsfólk.
Dreifing fer fram mánudaga til laugardaga.
Umsóknir óskast fylltar út á www.postdreifing.is. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega. Sendu póst á bladberi@postdreifing.is fyrir nánari upplýsingar.