Kóraskóli
Kóraskóli
Kóraskóli

Þroskaþjálfi óskast í Kóraskóla

Kóraskóli leitar eftir faglegum og áhugasömum þroskaþjálfa til að taka þátt í framsæknu skólastarfi með okkur.

Starfið felst í að vinna í teymi þar sem áherslan er lögð á þematengt, verkefnamiðað leiðsagnarnám. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf. Í námi og kennslu er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu og samþætt þemanám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur.

Þroskaþjálfi í grunnskóla ber ábyrgð á þjálfun og umönnun með fötluðum nemendum. Þroskaþjálfi vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara og fylgir nemendum alla jafnan í almennan bekk. Hann er í samskiptum við aðrar stofnanir s.s. Greiningar- og ráðgjafarstöð, Barna og unglingageðdeild, velferðasvið og fleiri, í samráði við deildarstjóra og skólastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sér um gerð einstaklingsáætlana í samráði við umsjónarkennara, sérkennara, foreldra, nemendur og aðra eftir því sem við á
  • Gerir færni- og þroskamat
  • Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila. Skilar niðurstöðum til næsta yfirmanns og foreldra
  • Tekur þátt í kennara- og starfsmannafundum
  • Annast ráðgjöf, upplýsingagjöf og upplýsingaöflun vegna sérþarfa nemenda sinna til foreldra og annarra hlutaðeigandi
  • Vinnur önnur þau verkefni sem skólastjóri felur honum og eðlilegt getur talist að rúmist innan verksviðs hans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi til að starfa sem þroskaþjálfi
  • Reynsla af starfi með nemendum með sérþarfir er kostur
  • Reynsla af einstaklingsmiðaðri nálgun í kennslu og þekking á fjölbreyttum kennsluháttum er kostur
  • Þolinmæði og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar bæjarins.

Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur20. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vallakór 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Þroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar