Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Sérfræðingur í fagteymi

Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum sérfræðingum í fagteymi á nýju sviði búsetu og samþættrar þjónustu. Um er að ræða tvö 100% stöðugildi. Barna- og fjölskyldustofa veitir og styður við þjónustu í þágu barna og stuðlar að gæðaþróun í samræmi við bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma. Störfin heyra undir framkvæmdarstjóra fagteymis. Starfsstöð er í Borgartúni 29 í Reykjavík en starfið getur krafist þess að viðkomandi ferðist um landið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að taka þátt í afgreiðslu, mati og úrvinnslu umsókna.
  • Að veita starfsfólki barnaverndarþjónustu og málastjórum ráðgjöf vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir og umsókna í búsetuúrræði sviðsins.
  • Að sinna ráðgjöf, fræðslu og handleiðslu til starfsfólks búsetuúrræða.
  • Að veita stuðning, fræðslu og þjálfun til starfsfólks í búsetuúrræðum.
  • Þátttaka í þróun og stefnumótun nýrra búsetuúrræða.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • BA/BS próf sem nýtist í starfi, t.d. þroskaþjálfi, ráðgjafi í hagnýtri atferlisfræði eða sambærilegt.
  • Framhaldsnám eða viðbótardiplóma á háskólastigi sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af störfum með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldum þeirra er kostur.
  • Þekking og/eða reynsla af starfi barnaverndar er kostur.
  • Þekking á gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir er kostur.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Sveigjanleiki og þjónustulund.
  • Góð íslensku og ensku kunnátta í mæltu og rituðu máli.
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar