Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Matráður á meðferðarheimilinu Lækjarbakka

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu matráðs á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Við leitum að góðum liðsfélaga sem hefur metnað til að bjóða upp á ferskan, hollan og fjölbreyttan mat. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu. Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Matseld og bakstur fyrir skjólstæðinga og starfsfólk.
  • Umsjón og ábyrgð á þrifum og meðferð matvæla.
  • Ábyrgð á rekstri eldhúss og innkaupum.
  • Virk þátttaka í meðferðarvinnu og einstaklingsbundnum stuðningi í samvinnu við stjórnendur.
  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla af matseld og bakstri er skilyrði.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla af umsjón og ábyrgð á rekstri eldhúss er æskileg.
  • Mjög góð samskiptahæfni, sveigjanleiki og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga eru nauðsynleg.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.
  • Enskukunnátta æskileg.
  • Gild ökuréttindi.
Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gunnarsholt 164495, 851 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar