Veitur
Veitur
Veitur

Þjónusturáðgjafi

Vilt þú taka þátt í að skapa jákvæða upplifun viðskiptavina í einu stærsta þjónustufyrirtæki landsins?

Veitur leita að drífandi og lausnamiðuðum þjónusturáðgjafa til að ganga til liðs við þjónustusvið fyrirtækisins. Um er að ræða tímabundið starf þar sem þú tekur þátt í að veita viðskiptavinum góða og skilvirka þjónustu í gegnum síma, tölvupóst og netspjall.

Í starfinu munt þú sinna fjölbreyttum erindum viðskiptavina, greina þarfir þeirra og leysa úr málum með fagmennsku og hlýju. Þú verður hluti af teymi sem hefur bein áhrif á upplifun og ánægju viðskiptavina og vinnur markvisst að því að bæta þjónustu og einfalda samskipti.

Hlutverkið

Í starfinu felst meðal annars að:

  • svara fyrirspurnum viðskiptavina í síma, tölvupósti og netspjalli
  • greina erindi og leysa úr málum með fagmennsku og hlýju
  • útskýra þjónustu og tæknileg atriði á einfaldan og skiljanlegan hátt
  • koma auga á tækifæri til umbóta í þjónustu og ferlum
Við leitum að einstaklingi sem er með:
  • jákvætt viðhorf, þjónustulund og góða samskiptahæfni
  • drifkraft, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðað hugarfar
  • hæfni til að útskýra flókin eða tæknileg atriði á skýran hátt
  • góða tölvukunnáttu og getu til að tileinka sér ný kerfi og tækni
  • menntun eða reynslu sem nýtist í starfi

Reynsla af þjónustustörfum er kostur. Þekking eða reynsla úr veitugeiranum, til dæmis á sviði rafmagns, hita, vatns eða fráveitu, getur einnig nýst vel í starfi.

Vinnutími er frá klukkan 8:30 til 16:30. Um er að ræða tímabundið starf.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026. Nánari upplýsingar veitir Halldóra Hinriksdóttir forstöðukona Þjónustu hjá Veitum, [email protected]

Hvers vegna Veitur?

Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tryggir aðgengi að rafmagni, hita, vatni og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.

Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.

Auglýsing birt21. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar