
Teya Iceland
Teya er fjártæknifyrirtæki, stofnað í Bretlandi árið 2019, með það meginmarkmið að skapa greiðslu- og hugbúnaðarlausnir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Markmið Teya er að hjálpa fyrirtækjum að sjálfvirknivæða og einfalda reksturinn.
Hingað til hafa lítil og meðalstór fyrirtæki ekki verið í forgangi þegar kemur að þróun og innleiðingu lausna á sviði fjármála- og tækniþjónustu. Flókin verð, falin gjöld, bindandi samningar og fjöldi mismunandi þjónustuaðila gerir daglegan rekstur fyrirtækja flókinn. Við erum hér til að breyta því!
Við erum árangursdrifin og leggjum áherslu á viðhorf frekar en reynslu. Okkar helsta áhersla er að skapa lausnir sem hjálpa fyrirtækjum að vaxa og dafna.
Teya hefur lagt áherslu á að fjárfesta í íslensku hugviti, eins og SalesCloud, Dineout og Noona.

Sumarstarf í söluteymi
Við leitum að drífandi og þjónustumiðuðum einstaklingi í sumarstarf í söluteymi Teya.
Í starfinu felst meðal annars að styðja við nýja söluaðila og hjálpa þeim að virkja og byrja að nota greiðslulausnir frá Teya. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir á samskiptahæfni, þjónustulund og lausnamiðaða hugsun, auk þess sem starfið gefur góða innsýn í starfsemi Teya og heim greiðslulausna.
Markmið starfsins er að hjálpa fleiri söluaðilum að komast hratt og örugglega af stað, skilja betur hvaða hindranir geta komið upp í ferlinu og leggja þannig sitt af mörkum til að bæta upplifun viðskiptavina í upphafi samstarfsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hafa samband við nýja söluaðila, veita þeim stuðning og aðstoða þá í virkjunarferlinu
- Leiðbeina söluaðilum um þau skref sem þarf að taka til að geta byrjað að taka við greiðslum, hvort sem er með posa og/eða rafrænum greiðslulausnum
- Greina og skrá ástæður þess að söluaðilar hafa ekki hafið notkun eða að tafir hafa orðið í ferlinu
- Safna upplýsingum og innsýn sem nýtist til að bæta umsóknar- og virkjunarferli söluaðila
- Veita endurgjöf til viðeigandi teyma um það sem betur má fara í ferlinu
- Vinna með öðrum teymum innan Teya að úrlausn mála og að því að fjarlægja hindranir fyrir söluaðila
- Önnur verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Frumkvæði, jákvætt viðmót og lausnamiðuð hugsun
- Góð skipulagshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Áhugi á upplifun viðskiptavina, sölu, fjártækni eða rekstri er kostur
Fríðindi í starfi
- Gjaldfrjálst aðgengi að léttu fæði á vinnutíma
- Niðurgreiddur hádegismatur í mötuneyti
- Frábær starfsandi, reglulegir viðburðir og virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi í framtíðarstarf
Gæðabakstur

Store and Information Center Employee
Travelshift

Sölu- og þjónustustarf í tískuvöruverslun Curvy
Curvy verslun

Sölufulltrúi - fullt starf
Freyja

Þjónustustjóri Hygge kaffihúsanna
Hygge - kaffi og bakarí

Afgreiðslustarf í skóverslun í miðbænum
Fló ehf.

KRINGLAN - HELGARVAKTIR
ILSE JACOBSEN Hornbæk

Vátrygginga- og lífeyrisráðgjafi hjá Bayern Líf á Akureyri
Bayern líf

Sölustjóri (Sales Manager)
Wolt

Rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Hafnarfirði
Húsasmiðjan

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Vaktstjóri á þjónustuborð í fullt starf!
BAUHAUS slhf.