
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Hafnarfirði
Vilt þú vinna á lifandi og skemmtilegum vinnustað?
Húsasmiðjan leitar að metnaðarfullum leiðtoga til þess að reka verslun okkar í Hafnarfirði. Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir þjónustu og fólki, er söludrifinn og hefur jákvætt hugarfar. Megin ábyrgð rekstrarstjóra er rekstur verslunar, skipulag og stýring á daglegri starfsemi ásamt því að skapa og viðhalda viðskiptatengslum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi verslunarinnar
- Bein söluráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini ásamt tilboðsgerð
- Sköpun og eftirfylgni viðskiptasambanda
- Umsjón með innkaupum og birgðahaldi
- Umsjón með starfsmannamálum
- Stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stjórnunarreynsla og hæfni til að leiða fólk til árangurs
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfniGóð þekking á verslunarrekstri og/eða á byggingavörumarkaði
- Reynsla af sölustörfum, sölustjórnun og viðskiptatengslum er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Afsláttarkjör í verslunum Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískarfts
- Aðgangur að orlofshúsum
- Styrkir til heilsueflingar
Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur13. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalshraun 15, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSamviskusemiSölumennskaStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Sölufulltrúi - Fullt starf hjá Heimilistækjum
Heimilistæki ehf

Þjálfari verslana og vörusölu
Nova

Fjármálastjóri
GoPro

Sölumaður varahluta
Hagvangur

Sölumaður Vogabæjar
KS

Söluráðgjafi Enterprise-lausna með áherslu á netlausnir
Advania

Söluráðgjafi Enterprise-lausna
Advania

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Söludrifinn aðili óskast
Örugg afritun