Gæðabakstur
Gæðabakstur
Gæðabakstur

Sölufulltrúi í framtíðarstarf

Ertu morgunhress og nýtur þess að byrja daginn snemma? Gæðabakstur leitar að metnaðarfullum og samviskusömum sölufulltrúa í fullt starf. Um er að ræða líflegt og fjölbreytt starf þar sem þú sérð um að keyra út vörur, hafa umsjón með framstillingu þeirra í verslunum og veita framúrskarandi þjónustu.

  • Vinnutími hefst á bilinu kl. 05:00–06:00 á morgnana
  • Unnið er alla virka daga og í boði að vinna aðra hverja helgi líka.
  • Starfið krefst sjálfstæðis, skipulagshæfni og jákvæðni
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Útkeyrsla á vörum til verslana
  • Framstilling og umsjón með vöruúrvali
  • Sala og þjónusta við viðskiptavini
  • Þátttaka í markaðs- og söluherferðum
  • Samskipti við verslunarstjóra og starfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gild ökuréttindi (meirapróf er kostur)
  • Góð íslenskukunnáttu
  • Reynsla af verslunarstörfum, dreifingu eða akstri er kostur
  • Stundvísi, snyrtimenneska og skipulagshæfni
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt9. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Lyngháls 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar