
Þjónustufulltrúi Skaftafelli - sumarstarf
Náttúruverndarstofnun leitar að jákvæðum, hjálpsömum og þjónustulunduðum einstakling með brennandi áhuga á náttúru og umhverfismálum til sumarstarfa í gestastofu og á tjaldsvæði í Skaftafelli. Starf þjónustufulltrúa er fjölbreytt, þar sem áhersla er lögð á að veita framúrskarandi þjónustu, miðla upplýsingum, afgreiðslu, umhirðu, ræstingar og að stuðla að jákvæðri upplifun gesta.
Einstaklingar sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu mikilvæga starfi eru hvattir til að sækja um og leggja sitt af mörkum til að bæta upplifun gesta og styðja við verndun náttúru Íslands.
-
Móttaka gesta, upplýsingagjöf og þjónusta í gestastofum.
-
Áfylling og framsetning vara í verslun og daglegt uppgjör tekna.
-
Símsvörun og svörun tölvupósta.
-
Ræsting, umhirða og viðhald á gönguleiðum, tjaldsvæðum, gestastofum og áningastöðum þar sem við á.
- Umsjón með afgreiðslu, umhirðu og daglegri starfsemi.
-
Framúrskarandi samskiptahæfni og sterk þjónustulund.
-
Jákvæðni, sveigjanleiki og lausnamiðuð hugsun við fjölbreyttar aðstæður.
-
Stundvísi, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Áhugi á náttúruvernd og umhverfismálum.
-
Geta til að tileinka sér þekkingu á starfssvæðinu.
-
Gott vald á íslensku og ensku, frekari tungumálakunnátta er kostur.
-
Gild ökuréttindi.
-
Gild réttindi í fyrstu hjálp eru kostur en boðið verður upp á námskeið í fyrstu hjálp í vor.
-
Geta til að vinna undir álagi og í fjölbreyttu vinnuumhverfi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsækjandi þarf að geta hafið störf strax.
Umsóknarfrestur er til og með 26.5.2026
Nánari upplýsingar veitir
Linda Björk Hallgrímsdóttir - [email protected]
Enska
Íslenska










