ELKO
ELKO
ELKO

Þjónustufulltrúi ELKO Skeifunni

Við leitum að þjónustufulltrúa til starfa í nýrri glæsilegri verslun ELKO Skeifunni.

Starfið felur í sér þjónustu og afgreiðslu til viðskiptavina í verslun ELKO Skeifunni.

Þjónustufulltrúi gegnir mikilvægu hlutverki í eftirkaupaþjónustu til viðskiptavina ásamt þjónustu á afgreiðslukössum, og hentar fólki með brennandi áhuga fyrir tækni, þjónustu og samskiptum..

Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, tekist á við krefjandi verkefni og hugsað í lausnum.

Vinnutími miðast almennt við afgreiðslutíma verslunar sem er 11-19 virka daga, 11-18 laugardag og 12-18 sunnudag.

Hæfniskröfur:

  • 20 ára og eldri
  • Rík þjónustulund
  • Geta unnið sjálfstætt og hugsað í lausnum
  • Geta sýnt frumkvæði í starfi og tekist á við krefjandi verkefni
  • Hæfni í samskiptum og fagleg vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð
  • Íslenskukunnátta er skilyrði

Hvetjum alla til að sækja um.

ELKO leggur mikið upp úr góðum starfsanda og er fyrirtækið eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum VR 2022. Tekið er vel á móti nýju starfsfólki þar sem það fær tilskylda þjálfun til þess að geta sinnt krefjandi og skemmtilegum verkefnum sem koma upp í daglegu starfi og þjónustu við viðskiptavini.

ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Frekari upplýsingar veitir Magnús T. Magnússon verslunarstjóri, [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 2.desember

Auglýsing birt10. nóvember 2022
Umsóknarfrestur2. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skeifan 7, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar