![Pósturinn](https://alfredprod.imgix.net/logo/09ad40e0-c656-4174-b7b6-0e56c71b9528.png?w=256&q=75&auto=format)
![Pósturinn](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-b92787d3-326a-44c7-bfc6-bd83030cf958.png?w=1200&q=75&auto=format)
Þjónustufulltrúi á Akureyri
Pósturinn leitar að kraftmiklum og jákvæðum þjónustufulltrúa til starfa hjá þjónustuveri Póstsins á Akureyri.
Starfið felur í sér að veita viðskiptavinum Póstsins margvíslega þjónustu eins og að taka á móti símtölum, sinna netsamtali, veita almennar upplýsingar, ráðgjöf, meðhöndla ábendingar frá viðskiptavinum og önnur tilfallandi verkefni.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Vinnutíminn er frá klukkan 09:00 til 17:00 mánudaga til fimmtudaga og frá 09:00 til 16:00 á föstudögum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
- Lausnamiðuð hugsun
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2024. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Bergrós Pétursdóttir, þjónustustjóri, í tölvupósti - fanneyp@postur.is.
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)
![Takk ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-79cd3257-64d7-4a86-8565-564a54ce82b4.png?w=256&q=75&auto=format)
![iClean ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/9312311b-e0d8-4a90-bbed-064ffa9f8d33.png?w=256&q=75&auto=format)
![Securitas](https://alfredprod.imgix.net/logo/6ba81df6-1b5c-4ff5-8f7b-5df872ccb5ce.png?w=256&q=75&auto=format)
![Ásatrúarfélagið](https://alfredprod.imgix.net/logo/2b9339cb-ce68-4689-88dd-adcf5e2289f8.png?w=256&q=75&auto=format)
![Kerfi Fyrirtækjaþjónusta](https://alfredprod.imgix.net/logo/ba77493e-1863-4739-807a-e408ee489b2b.png?w=256&q=75&auto=format)
![Álfaborg ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/c18ca3a0-82aa-4456-b372-853f948db8bc.png?w=256&q=75&auto=format)
![IKEA](https://alfredprod.imgix.net/logo/f7aecef2-c6da-40da-9944-71e8604e92ec.png?w=256&q=75&auto=format)
![Bayern líf](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-78707532-ce9d-41cc-beb0-642a31079f23.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Gæðabakstur](https://alfredprod.imgix.net/logo/920a772b-9a4e-42e0-894d-c857949deed2.png?w=256&q=75&auto=format)
![Dineout ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-7a7b544b-861c-4c33-b523-4e58d27ed85c.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![JYSK](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-4bd59cbf-882b-4914-ab5d-28df4d85bdf8.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hótel Keflavík & Diamond Suites](https://alfredprod.imgix.net/logo/141127e8-5442-4aac-9607-1f56fc020fb9.png?w=256&q=75&auto=format)