Þjónustufulltrúi hjá Securitas
Þjónustuver Securitas
Viltu verða partur af sterkri liðsheild í þjónustuverinu okkar í Reykjavík eða á Akureyri ?
Við hjá Securitas leitum af kraftmiklum aðila til þess að ganga til liðs við teymið okkar í þjónustuveri þar sem viðkomandi mun sinna starfi þjónustufulltrúa. Starfið felur í sér fjölbreytta ráðgjöf og þjónustu í öryggismálum til viðskiptavina ásamt skráningu og vinnslu þjónustumála.
Viðkomandi mun verða partur af samheldnum hópi sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum Securitas framúrskarandi þjónustu.
Ef þú...
- býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
- hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
- býrð yfir þekkingu á Navision og CRM kerfum væri það kostur
- býrð yfir reynslu af ráðgjöf og þjónustu
...þá gætum við verið að leita af þér!
Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 08:00 – 16:00 mánudag til fimmtudags og stytting vinnuvikunnar á föstudögum. Starfið hentar öllum kynjum sem eru með góða íslenskukunnáttu og hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí nk.
Nánar upplýsingar um starfið veitir Karítas Rós Einarsdóttir, deildarstjóri þjónustuvers, í síma 580-7000.