Vök Baths
Vök Baths
Vök Baths

Þjónusta og bókhald

Vök Baths leitar að metnaðarfullum, lausnamiðuðum og drífandi starfsmanni í fullt starf til að sinna fjölbreyttu skrifstofustarfi, þjónustu og bókhaldi. Starfið felst í að þjónusta viðskiptavini, sjá um sölukerfi og umsjón með hópabókunum, sinna reikningagerð, kassakerfi og daglegu uppgjöri. Viðkomandi þarf að hafa metnað og áhuga á að vinna í teymi og vera virkur þátttakandi í að móta þjónustu Vök Baths til framtíðar. Í því felst rík þjónustulund, góð hæfni í samskiptum, gott talnalæsi, lausnamiðuð hugsun, skipulögð og öguð vinnubrögð. Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 12. ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Þjónusta og samskipti við viðskiptavini og ferðaþjónustuaðila

·       Umsjón með sölukerfum og kassakerfi

·       Umsjón með hópabókunum

·       Daglegt uppgjör og reikningagerð

·       Tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Reynsla af bókhaldsstörfum æskileg
  • Góð þekking á notkun Business Central er kostur
  • Nákvæm og vönduð vinnubrögð
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Auglýsing stofnuð5. júlí 2024
Umsóknarfrestur21. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Urriðavatn , 701 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar