Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri óskast í Jöklasel

Við í Jöklaseli óskum eftir ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi í starf teymisstjóra. Í Jöklaseli starfar frábær og kraftmikill hópur starfsfólks og einkennist vinnustaðurinn af gleði og jákvæðni.

Í Jöklaseli er lögð sérstök áhersla á góð og uppbyggileg samskipti þar sem mikið er lagt upp úr skapandi og góðu vinnuumhverfi. Unnið er eftir aðferðum þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Þjónustan er einstaklingsmiðuð með áherslu á valdeflingu.

Í Jöklaseli búa 6 einhverfir einstaklingar á aldrinum 23-46 ára. Mikið umbótastarf hefur átt sér stað í starfsemi Jöklasels og leggjum við mikið upp úr því að veita framúrskarandi þjónustu við íbúa. Umbótastarfið felur m.a. í sér aukna fagvinnu í kringum íbúa með áherslu á að auka lífsgæði þeirra.

Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum.
Reynsla af stjórnun og teymisvinnu æskileg.
Áhugi á að starfa með fólki með einhverfu og/eða þekking á einhverfu.
Afburðahæfni í mannlegum samskiptum.
Metnaður, skipulagshæfni, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Íslenskukunnátta B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfi teymisstjóra er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu í anda hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf og aðferðir þjónandi leiðsagnar.
Markmiðið er að gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og félagslíf og lifa í samfélaginu án aðgreiningar. Þjónustan miðar að því að auka lífsgæði og sjálfstæði íbúa með því að efla færni þeirra, stuðla að jákvæðum samskiptum og jákvæðri sjálfsmynd.
Mikil áhersla er lögð á fagvinnu og gert er ráð fyrir að vinnutími teymisstjóra skiptist í 50% fagvinnu og 50% vaktir. Fagvinna á sér stað á dagvinnutíma og vaktir eru dag-, kvöld- og helgarvaktir. Teymisstjóri er hluti af 5 manna stjórnunarteymi starfsstaðar. Teymisstjóri vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar i málefnum fatlaðs fólk og í samræmi við Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Ber faglega ábyrgð, hefur umsjón með framkvæmd þjónustu og veitir starfsfólki leiðsögn þegar kemur að framkvæmd þjónustu við íbúa.
Hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir einstaklinga í teyminu og ber ábyrgð á að starfsemin mæti þjónustuþörfum einstaklinga.
Stýrir teymum íbúa og sér um að útdeila verkefnum.
Stýrir daglegum störfum starfsfólks í samráði við forstöðumann og tekur þátt í þróunar- og umbótavinnu varðandi faglegt starf.
Stuðlar að þverfaglegu samstarfi, bæði innan og utan Reykjavíkurborgar.
Stuðlar að jákvæðum samskiptum við þjónustunotendur og annað samstarfsfólk.
Auglýsing birt7. janúar 2022
Umsóknarfrestur27. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar