

Spennandi starf í búsetu- og utankjarna þjónustu fyrir fólk með geðrænar áskoranir
Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir að ráða starfsfólk til starfa í búsetu og utankjarna þjónustu fyrir fatlað fólk með geðrænar áskoranir.
Við leitum af traustum, úrræðagóðum einstakling sem hefur áhuga á að vinna með fólki sem glímir við fjölbreyttar og stundum alvarlegar geðrænar áskoranir. Starfið getur verið krefjandi og mikilvægt að viðkomandi geti haldið ró sinni, sýnt öryggi og stigið inn í ólíkar og ófyrirsjáanlegar aðstæður af fagmennsku.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk geti sýnt frumkvæði, skapað öryggi og góðar aðstæður í daglegu lífi og komið auga á tækifæri til virkni, þátttöku og aukinna lífsgæða
Um er að ræða 50-80% starf í vaktavinnu. Unnið er á morgun-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Starfsfólk þarf að hafa náð 20 ára aldri eða eldra.
Markmið þjónustu við fatlað fólk hjá Kópavogsbæ er að veita persónulegan stuðning og einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem stuðlar að jafnrétti, sjálfstæði og góðum lífsgæðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðaður og persónulegur stuðningur við þjónustunotendur í daglegu lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
- Faglegur stuðningur við einstaklinga sem glíma við fjölbreyttar geðrænar áskoranir.
- Að skapa öryggi, festu og góðar aðstæður, einnig þegar upp koma krefjandi eða ófyrirsjáanlegar aðstæður.
- Að stuðla að virkni, samfélagsþátttöku og auknu sjálfstæði þjónustunotenda.
- Að fylgja eftir þjónustuáætlunum, verklagsreglum og faglegum áherslum þjónustunnar.
- Aðstoð og stuðningur við heimilishald og athafnir daglegs lífs.
- Að fylgjast með heilsufari og líðan íbúa og bregðast við þegar þörf krefur.
- Virk þátttaka í góðu samstarfi og jákvæðri liðsheild.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af störfum með fólki með geðrænar áskoranir er æskileg.
- Áhugi og skilningur á málefnum fólks með geðrænar áskoranir.
- Hæfni til að takast á við krefjandi og ófyrirsjáanlegar aðstæður og geta til að skapa uppbyggilegar aðstæður fyrir þjónustunotendur.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfi og að skapa traust.
- Góð hæfni til að vinna undir álagi og halda ró sinni þegar aðstæður verða krefjandi.
- Sveigjanleiki og hæfni til að tileinka sér nýjar nálganir og bregðast við breyttum þörfum.
- Bílpróf og góð íslenskukunnátta eru skilyrði.
Fríðindi í starfi
- Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
- Íþróttastyrkur.
Aðrar upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa á Velferðarsviði Kópavogsbæjar þurfa að veita heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn Helga Óskarsdóttir, forstöðumaður, í tölvupósti: [email protected].
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar og jafnréttislögum við ráðningar.
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningavef Kópavogs.
Íslenska










