Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í tímabundinni búsetu fyrir karlmenn í miðbænum

Hefur þú áhuga á skaðaminnkandi starfi? Við leitum að metnaðarfullum teymisstjóra í fullt starf í tímabundinni búsetu fyrir karlmenn.

Vesturmiðstöð óskar eftir að ráða öflugan teymisstjóra í tímabundið búsetuúrræði fyrir karlmenn sem hafa langvarandi reynslu af heimilisleysi. Á heimilinu er veitt sólarhringsþjónusta. Starfsfólk starfar inni á heimili íbúa og veitir fjölbreyttan stuðning með það að markmiði að aðstoða íbúa við að halda heimili, efla vald yfir eigin aðstæðum, auka lífsgæði og eiga innihaldsríkt líf.

Markmið með þjónustunni er að veita heimilislausum karlmönnum með miklar og flóknar þjónustuþarfir tímabundna búsetu til að meta betur langvarandi stuðnings- og húsnæðisþörf íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðan hátt. Með því eru gerðar ákveðnar kröfur um skipulag og innihald þjónustunnar. Þjónustan er einstaklingsmiðuð, batamiðuð og tekur mið af hugmyndafræði um sjálfstætt líf og skaðaminnkun.

Mikilvægt er að starfsfólk treysti sér í að sinna krefjandi verkefnum af yfirvegun, þar sem mannleg reisn og samkennd er höfð að leiðarljósi við íbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með framkvæmd og skipulagi á daglegri þjónustu við íbúa í samráði við forstöðumann.
  • Ber ábyrgð á gerð og endurmati einstaklingsáætlana í samvinnu við íbúa og forstöðumann.
  • Veitir íbúum fjölbreyttan stuðning og er vakandi yfir andlegri og líkamlegri heilsu þeirra og aðstoðar í viðeigandi úrræði.
  • Kemur að almennu heimilishaldi, líkt og þrifum, tiltekt og matseld.
  • Er leiðandi þegar kemur að faglegum vinnubrögðum, vinnu eftir verklagi og hugmyndafræðilegri nálgun á heimilinu.
  • Leiðbeinir og veitir starfsfólki fræðslu, samræmir fagleg vinnubrögð og þróar verkferla og vinnulög á heimilinu, í samráði við forstöðumann.
  • Tekur þátt í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa og kemur á samstarfi við fagaðila og þjónustuúrræði.
  • Leysir af forstöðumann og er hluti af stjórnunarteymi starfsstaðar.
  • Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda. 
  • Reynsla af starfi með einstaklingum sem glíma við vímuefnavanda eða fjölþættan vanda.
  • Umburðarlyndi, virðing og skilningur fyrir fólki sem glímir við vímuefnavanda er skilyrði.
  • Þekking og reynsla á skaðaminnkandi hugmyndafræði, notendasamráði og áfallamiðaðri nálgun.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og faglegum vinnubrögðum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Ökuréttindi.
  • Íslenskukunnátta B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Styttri vinnuvika
  • Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
  • Sund- og menningarkort
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur11. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skeggjagata 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar