
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Sumarstarf stuðningsfulltrúa í Stigahlíð
Heimilið Stigahlíð 54 óskar eftir að ráða hressa, hrausta, ábyrgðarfulla og vinnuglaða stuðningsfulltrúa í allt að 100% starf vegna sumarorlofa starfsfólks. Um er að ræða morgun-kvöld- nætur og helgarvaktir. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn þjónusta og aðstoð við heimilisstörf eins og þrif og matseld.
- Veita íbúum félagslegan stuðning innan heimilis sem utan.
- Hvetja og styðja íbúa til sjálfhjálpar og félagslegrar virkni.
- Stuðningur við allar athafnir daglegs lífs
- Sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
- Önnur þau störf sem geta fallið innan starfslýsingar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
- Reynsla af störfum með fötluðum æskileg en ekki skilyrði
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, stundvísi, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði, C1 eða hærra samkvæmt https://europass.europa.eu/system/files/2020-05/CEFR%20self-assessment%20grid%20IS.pdf
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur27. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Stigahlíð 54, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniSamviskusemiSnyrtimennskaSveigjanleikiUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)

Framsýnn og öflugur forstöðumaður óskast í Liðsaukann
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf sem skiptir máli! Vertu hluti af öflugu og samheldnu teymi í Stjörnugróf 11
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hey! Laust sumarstarf í skemmtilegum íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri á íbúðakjarna í Laugardalnum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Framsýnn og öflugur forstöðumaður óskast í Liðsaukann
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Aðstoðarmatráður í Skólamötuneyti Fáskrúðafjarðar
Leikskólinn Kæribær

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin

Traust aðstoðarmanneskja óskast á Suðurlandi í 45% starf. Seeking reliable personal Assistants
NPA miðstöðin

Spennandi sumarstarf í þjónustukjarna fyrir geðfatlaða
Mosfellsbær

Íþróttafræðingur / aðstoðarmaður í sjúkraþjálfun
Grund hjúkrunarheimili

Tanntæknir/Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannlæknastofan Álfabakka 14 Mjódd ehf.

Aðstoðarkona óskast á dagvaktir
NPA miðstöðin

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á kvöld og helgarvaktir
NPA miðstöðin

Almenn umsókn um sumarstarf
Sumarstörf - Kópavogsbær

Leita að NPA aðstoðarfólki / NPA assistants wanted
NPA miðstöðin

Þroskaþjálfi - málastjóri - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskan
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins