Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey
Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey
Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey

Landstjóri í Nauthólsvík

Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey leitar að ábyrgum starfskrafti sem brennur fyrir barnastarfi og getur búið börnunum öruggt og skemmtilegt umhverfi í landi, þegar þau eru ekki úti að sigla.


Brokey heldur úti námskeiðum fyrir börn og fólk á öllum aldri í kænusiglingum. Meginhluti námskeiðanna fer fram úti á sjó en við leitum að starfskrafti sem hefur yfirumsjón með börnunum á meðan þau eru í landi; tekur á móti þeim á morgnanna, fylgir þeim út í lok dags og er þeim innan handar þegar þau takast á við áskoranir og sigra siglinganámsins. Umsjónarmaður er helsti tengiliður barnanna í landi og hefur umsjón með öryggismálum. Ekki er þörf á reynslu eða þekkingu á siglingum.


Starfið felur einnig í sér að vera yfirmaður ungra starfsmanna úr vinnuskólanum (14-16 ára) og sinnir afmörkuðum verkefnum innanhús, t.a.m. að gæta þess að umgengnisreglum sé fylgt, að bátum og eignum félagsins sé sinnt sem skyldi og þrif á búningsklefum.


Starfið er upplagt fyrir þau sem eru í námi eða nýlega útskrifuð úr námi tengdu kennslu og/eða barnastarfi og vilja öðlast reynslu í lifandi starfsumhverfi yfir sumartímann.

Vinnuhlutfallið er 60% frá 8:30 til 13:00 alla virka daga.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.

Sótt er um hérna á Alfreð en frekari upplýsingar um starfið má fá með pósti á [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og umsjón með börnum í upphafi og lok dags, og alltaf meðan þau eru í landi

  • Umsjón með ungu starfsfólki úr vinnuskólanum

  • Umsjón með öryggismálum og viðbragðsáætlunum

  • Samskipti við foreldra eftir þörfum

  • Halda húsi hreinu og búnaði til reiðu

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og áhugi á starfi með börnum

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

  • Geta til að bregðast við fljótt og örugglega ef óhapp skyldi henda

  • Þekking og áhugi á slysavörnum og/eða viðbragðsáætlunum

  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum

  • Viðkomandi þarf að búa yfir skipulagshæfni og sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi

  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði

  • Reynsla eða áhugi á siglingum er kostur en ekki skilyrði

  • Menntun í fagi tengdu kennslu eða barnastarfi (t.d. tómstunda og félagsmálafræði, uppeldis og menntunarfræði eða annað) er mikill kostur en ekki skilyrði

Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur29. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Nauthólsvík , 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar