
Hvalfjarðarsveit
Íþróttamiðstöðin Heiðarborg.
Sundlaug, líkamsræktarsalur og íþróttasalur.
Opnunartími er mánudaga - fimmtudaga frá kl. 16:00 - 21:00
laugardaga frá kl. 10:00-15:00.
Síminn í Heiðarborg er 433-8541.
Netfang: [email protected]

Forstöðumaður íþrótta- og frístundamála
Hefur þú brennandi áhuga á tómstunda- og íþróttamálum fyrir börn og fullorðna?
Langar þig að taka þátt í rekstri og þróun íþróttamannvirkis?
Hvalfjarðarsveit leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til að stýra íþrótta- og frístundamálum sveitarfélagsins. Við leitum að einstaklingi með reynslu á sviði íþrótta- og félagsmála og góða skipulags- og samskiptahæfni.
Ef þú hefur metnað fyrir öflugu íþrótta- og frístundastarfi og vilt hafa jákvæð áhrif í samfélaginu, þá gætir þú verið rétti einstaklingurinn fyrir okkur.
Starf forstöðumanns íþrótta- og frístundamála heyrir undir deildarstjóra Velferðar- og fræðsludeildar og um 100% starf er að ræða. Starfstöð er í Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýring og daglegur rekstur íþróttamannvirkisins Heiðarborgar, félagsmiðstöðvar, frístundaþjónustu og tómstundastarfs eldri borgara.
- Yfirumsjón með skipulagi og samræmingu starfseminnar.
- Þátttaka í stefnumótun, áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana.
- Umsjón með upplýsingamiðlun, skráningum og öðrum verkefnum sem tengjast starfseminni.
- Eftirlit með því að starfsemin uppfylli viðeigandi gæðakröfur samkvæmt lögum, reglum, samþykktum og samningum.
- Samstarf við íbúa, félagasamtök og aðra hagaðila sveitarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Stjórnunarreynsla á sviði íþrótta- og tómstundamála er æskileg.
- Reynsla og þekking á rekstri, stjórnun og stefnumótun er kostur.
- Þekking á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg.
- Góð tölvukunnátta.
- Góð málakunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hreint sakavottorð.
- Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur2. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Heiðarborg 133783, 301 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Kennari – Leikskólinn Hlíðarendi
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Tröllaheima - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I