
Avis og Budget
Bílaleiga Avis rekur rætur sínar allt aftur til ársins 1946, til borgarinnar Detroit í Michigan. Í dag er bílaleiga Avis heimsþekkt alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar í meira en 165 löndum. Avis á Íslandi hefur verið starfandi síðan 1987 og er í dag ein stærsta bílaleiga landsins.
Hjá Avis á Íslandi starfa um 100 manns um land allt með höfuðstöðvar í Reykjavík. Avis er fjölbreyttur og skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu.
Fyrirtækið hlaut jafnlaunavottun 2021 og fjöldann allan af ferðaviðurkenningum.

Tekjustjóri
Avis og Budget á Íslandi leitar að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur mikinn áhuga á greiningum og tekjutækifærum. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í tekjuvexti og þróun tekjustýringar hjá sölu- og markaðssviði.
Helstu verkefni eru að stýra verðum, greina markaðsaðstæður og finna ný tekjutækifæri. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem greiningarhæfni, forvitni og lausnarmiðuð vinnubrögð eru í fyrirrúmi í ört vaxandi alþjóðlegu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra verðum í samræmi við eftirspurn, framboð og markaðsaðstæður
- Greina verðlagningu, bókunarmynstur og árangur
- Finna ný tekjutækifæri
- Þróa nýjungar og stefnu í tekjustýringu
- Vinna náið með stjórnendum og á alþjóðavísu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Skilningur eða reynsla á tekjustýringu, verðstýringu eða sambærilegum greiningarstörfum
- Sterk greiningarhæfni og þekking á notkun gagna til ákvarðanatöku
- Mjög góð færni í Excel og öðrum greiningartólum (t.d. BI-verkfærum)
- Skipulögð, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Holtagarðar, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Undirbúningur ferða - sumarstarf
Icelandia

Operations Manager – Tindasel
Tindasel - The Farm

Sérfræðingur í Rannsóknaþjónustu
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur í hagtölum um laun og tekjur
Hagstofa Íslands

Reynslumikill sérfræðingur í launagreiningum
Intellecta

Landverðir - sumarstörf
Náttúruverndarstofnun

Þjónustufulltrúar - sumarstörf
Náttúruverndarstofnun

Night Receptionist at Reykjavík Residence Hotel
Reykjavik Residence

Sérfræðingur í markaðs- og vaxtaáhættu
Seðlabanki Íslands

Atlantik leitar að öflugu sumarstarfsfólki
Atlantik

Bílstjóri á skutlu í Skaftafelli - sumarstarf
Icelandia

Jöklaleiðsögumaður - sumarstarf
Icelandia