Hurð ehf
Hurð ehf

Tæknimaður óskast í uppsetningu og viðhald vélbúnaðar

Leitað er að fjölhæfum starfsmanni sem getur unnið sjálfstætt og skilar góðu verki. Ekki er gerð krafa um að fullkomin kunnátta sé fyrir hendi frá upphafi en hæfileiki til að læra og almennur tæknilegur skilningur þurfa að vera fyrir hendi. Þar sem búast má við að starfsþjálfun taki nokkra mánuði, er æskilegt að umsækjendur sjái fyrir sér að minnsta kosti 1 ár í starfinu. Góð mæting er mikilvæg. Góð laun í boði fyrir góðan starfsmann.

---

Mætt til vinnu hvern morgun í bækistöð fyrirtækisins, 110 Reykjavík.
Starfið felur í sér vinnu við uppsetningu og viðhald á ýmiskonar hurðum, hliðum og öðrum skildum tækjabúnaði.
Starfinu fylgir nokkur líkamleg áreynsla, þó það sé breytilegt eftir verkefnum. Oft er unnið á tröppum, í stiga, á vinnupalli eða vinnulyftu.
Af og til unnið í kringumstæðum þar sem lágt er til lofts eða þrengsli.

Megnið af vinnunni fer fram víðsvegar um höfuðborgarsvæðið, utan bækistöðvar vinnustaðarins.
Um helmingur vinnunar fer fram utandyra en er eftir bestu getu hagað eftir veðurfari.
Hluti vinnu fer fram utan höfuðborgarsvæðisins, nokkrum sinnum á ári jafnvel á vestfjörðum, norður- eða austurlandi.

Mörg verkefni eru í smærri kantinum, þannig að ekki sé þörf á að fleiri en einn séu við verkið. Í þeim tilvikum þar sem umfang verks er meira en svo að einn ráði við með góðu, fara tveir eða fleiri saman í verkið. Ef einn er verkefnalaus og annar getur þegið hjálp, er þó alltaf gott að nýta tækifærið og létta undir með samstarfsmönnum.

Vinnutími er almennt 8-17 virka daga. Af og til lengri dagar þegar mikið liggur við. Styttri dagar mögulegir eftir atvikum, ef starfsmaður óskar þess. Hugsanleg helgarvinna og bakvaktir, sé áhugi fyrir slíku.

Ýmislegt má læra í starfinu og öðlast reynslu sem gagnast á mörgum sviðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að skila góðu verki og halda þannig jafnt viðskiptavinum sem vinnuveitanda glöðum.
  • Að koma vel fram við viðskiptavini og samstarfsmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð framkoma og heiðarleiki.
  • Menntun sem kemur að gagni, hvort sem hún hefur endað með prófskírteini eða ekki: Rafvirkjun, vélvirkjun, vélsmíði, vélstjórn, málmiðnir, málmsuða eða aðrar skildar greinar.
  • Hæfileiki til að vinna í höndum, greina og leysa vélræn vandamál.
  • Reynsla af vinnu eða fikti við vélbúnað, rafbúnað, farartæki, tölvur og forritun.
  • Þokkaleg íslenskukunnátta mjög æskileg, að minnsta kosti þokkalegur skilningur.
  • Þokkaleg enskukunnátta nokkuð mikilvæg.
  • Öll önnur tungumál gagnleg, að minnsta kosti til gamans.
  • Almenn ökuréttindi (á fólksbíl eða lítinn sendibíl). Frekari réttindi geta komið að gagni.
  • Lyftara og vinnuvélaréttindi mjög gagnleg.
Fríðindi í starfi
  • Ýmis fríðindi eru umsemjanleg fyrir góða starfsmenn.
Auglýsing birt13. janúar 2025
UmsóknarfresturEnginn
Laun (á mánuði)600.000 - 900.000 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.SmíðarPathCreated with Sketch.VélvirkjunPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar