Corus ehf
Corus ehf
Corus ehf

Tæknilegur mannauðsráðgjafi

Corus leitar að tæknilega sterkum ráðgjafa í þjónustu við viðskiptavini Kjarna, sem er mannauðs- og launakerfi. Í þessu hlutverki er sérstök áhersla á mannauðshluta kerfisins sem styður allt ferlið frá ráðningu til starfsloka, s.s. ráðningar, mannauðsferlar, gátlistar, frammistöðumat, viðvera og fleira. Einnig býður lausnin upp á stjórnendavef, starfsmannavef og snjallforrit.

Ef þú býrð yfir góðri þekkingu á sviði mannauðsmála, ert tæknifær og kerfisgrúskari þá gæti þetta starf verið kjörið fyrir þig!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þú munt leiða innleiðingar á Kjarna mannauðs- og launakerfi
  • Þú munt vinna náið með viðskiptavinum Kjarna í mannauðshluta kerfisins, sem flestir eru mannauðsstjórar og mannauðssérfræðingar
  • Þú munt veita ráðgjöf um virkni kerfisins og hjálpa viðskiptavinum að nýta kerfið að fullu
  • Þú munt taka þátt í að þróa kerfið áfram með okkur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði, sálfræði, mannauðsstjórnun
  • Þekking á Kjarna eða öðrum mannauðskerfum
  • Minnst þriggja ára reynsla af mannauðsmálum
  • Góð tæknikunnátta er skilyrði
  • Góð greiningarhæfni og geta til að leysa úr flóknum úrlausnarefnum
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Góð samskiptahæfni og mikil þjónustulund
Fríðindi í starfi
  • Að vera hluti af frábæru teymi ráðgjafa í mannauðs- og launalausnum
  • Gagnkvæmt traust og sveigjanleiki
  • Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf
  • Vinnustaður sem leggur áherslu á heilsu og býður upp á frábært mötuneyti
  • Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.
  • Hvatning til að þróast í starfi og efla þekkingu 
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur6. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar