
Sérfræðingur í mannauðs- og launamálum
Matvælastofnun (MAST) óskar eftir að ráða jákvæðan og drífandi einstakling í starf sérfræðings í mannauðsmálum. Leitað er að einstaklingi sem nýtur þess að vinna í teymi, hefur ríka þjónustulund og metnað fyrir því að byggja upp heilbrigt vinnuumhverfi. Um er að ræða fjölbreytt mannauðstengd verkefni sem krefjast mikils samráðs við stjórnendur og samskipta við starfsfólk. Hluti starfsins snýr að umsýslu gagna og samskiptum tengt launamálum. Um fullt starf er að ræða.
Starfsstöðvar stofnunarinnar eru víða um land og er staðsetning starfs á Selfossi með möguleika á skiptingu milli Selfoss og Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fjölbreytt verkefni tengd ráðningum.
- Umsjón með móttöku og þjálfun nýliða.
- Yfirsýn og umsjón með fræðslu- og þjálfunarmöguleikum starfsfólks og skipulagning viðburða með áherslu á fræðslu.
- Eftirfylgni með niðurstöðum vinnustaðagreininga og umsjón með menningartengdum verkefnum sem snúa að starfsanda og heilbrigðri vinnustaðamenningu.
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í mannauðstengdum málum.
- Úrvinnsla gagna, miðlun niðurstaðna og upplýsingagjöf þegar við á m.a. með fréttum á innri vef stofnunarinnar.
- Umsjón með Vinnustund, samantekt gagna fyrir mánaðarlega launavinnslu og ýmis umsýsla m.a. svörun erinda.
- Þátttaka í stefnumótun í mannauðsmálum, nýsköpun og stafrænum umbreytingum ferla.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er æskileg.
- Haldbær reynsla af mannauðsmálum m.a. innsýn í launa- og kjaramál.
- Þekking, reynsla og áhugi á fræðslu- og þjálfunarmálum.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Áreiðanleiki, drifkraftur og umbótasinnuð hugsun.
- Frumkvæði, sveigjanleiki, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri.
- Mjög góð tölvufærni og geta til að vinna með gögn.
- Góð þekking á launa- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) og Vinnustund er æskileg.
- Þekking á OneCRM skjalakerfi er kostur.
- Íslenskufærni málfar og ritun C2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
- Enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum.
Um Matvælastofnun:
Matvælastofnun (MAST) er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölbreytt og starfsstöðvar víða um land. Í boði er 36 stunda vinnuvika, sveigjanleiki í starfi og ýmis hlunnindi. Hjá Matvælastofnun er starfandi öflugt starfsmannafélag sem skipuleggur viðburði af og til. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Um er að ræða fullt starf og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.
Íslenska
Enska









