Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Verkefnastjóri í mannauðs- og launadeild Akraneskaupstaðar

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra til starfa í mannauðs- og launadeild Akraneskaupstaðar. Starfið hentar einstaklingi sem blómstrar í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi þar sem nákvæmni, þjónustulund og fagmennska eru lykilatriði.

Um er að ræða stöðu innan fjármála- og þjónustusviðs þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, þróun og öfluga þjónustu við stjórnendur og starfsfólk.

Viðkomandi gegnir mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og þróun mannauðs- og kjaramála hjá sveitarfélaginu, með sérstaka áherslu á launavinnslu, kjarasamninga og greiningar.

Akraneskaupstaður er á spennandi vegferð þar sem unnið er markvisst að samþættingu mannauðs- og launamála og innleiðingu nýrra stafrænna lausna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með og þátttaka í launavinnslu og kjaramálum
  • Ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks um mannauðs- og kjaramál
  • Túlkun og eftirfylgni kjarasamninga
  • Þróun og umbætur á verkferlum í mannauðs- og launamálum
  • Þátttaka í innleiðingu og þróun mannauðs- og launakerfa
  • Úrvinnsla og greining gagna um mannauð og laun
  • Þátttaka í jafnlaunakerfi og öðrum gæðakerfum
  • Verkefnastjórnun í þróunar- og umbótaverkefnum
  • Verkefni sem snúa að vinnuvernd og viðverustjórnun
  • Þátttaka í fræðslu og miðlun upplýsinga til stjórnenda og starfsfólks
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í mannauðsstjórnun eða sambærilegt
  • Traust reynsla af launavinnslu og góð þekking á kjarasamningum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í mannauðsmálum er kostur
  • Góð greiningarhæfni og færni í að vinna með gögn
  • Þekking á mannauðs- og launakerfum er kostur
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
Við bjóðum
  • Áhugavert og krefjandi starf í öflugu teymi
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun mannauðs- og kjaramála
  • Sveigjanlegt og styðjandi starfsumhverfi
  • Fjölbreytt verkefni og góð tækifæri til faglegrar þróunar
Um mannauðs- og launadeild

Mannauðs- og launadeild Akraneskaupstaðar sinnir lykilhlutverki í rekstri sveitarfélagsins og styður við stjórnendur og starfsfólk í mannauðs-, launa- og kjaramálum. Deildin vinnur markvisst að þróun ferla, greiningu gagna og innleiðingu stafrænna lausna til að efla þjónustu og skilvirkni. Mannauðs- og launadeild heyrir undir mannauðsstjóra.

Auglýsing birt14. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar