
Corus ehf
Corus er hugbúnaðarfyrirtæki sem býður íslenskum fyrirtækjum og stofnunum traustan samstarfsaðila fyrir öll mannauðs- og launamál. Lykillausnir félagsins eru Kjarni, mannauðs- og launakerfi og Moodup starfsánægjumælingar. Hjá félaginu um 30 starfsmenn. Fjöldi viðskiptavina félagsins eru hátt í 300 fyrirtæki og stofnanir.

Launaráðgjafi í Kjarna
Corus leitar að reynslumiklum launaráðgjafa í þjónustu við viðskiptavini Kjarna. Kjarni er mannauðs- og launakerfi sem heldur utan um allt ferlið frá ráðningu til starfsloka. Launakerfið er veigamikill hluti af Kjarna og til þess að aðstoða okkar viðskiptavini í að nýta kerfið eins og best verður á kosið, höfum við frábært teymi ráðgjafa og forritara. Nú við viljum styrkja ráðgjafahópinn okkar enn frekar. Ef þú býrð yfir góðri þekkingu á sviði launavinnslu, ert tæknifær og vilt þróast í starfi þá gæti þetta starf verið kjörið fyrir þig!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þú munt leiða innleiðingar á Kjarna mannauðs- og launakerfi
- Þú munt vinna náið með viðskiptavinum Kjarna í launahluta kerfisins, sem flestir eru sérfræðingar í launavinnslu
- Þú munt veita ráðgjöf um virkni kerfisins og hjálpa viðskiptavinum að nýta kerfið að fullu
- Þú munt taka þátt í að þróa kerfið áfram með okkur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Minnst þriggja ára reynsla af launavinnslu og launabókhaldi er skilyrði
- Þekking á Kjarna eða öðrum sambærilegum launakerfum
- Góð greiningarhæfni og geta til að leysa úr flóknum úrlausnarefnum
- Nákvæm og öguð vinnubrögð
- Góð almenn tæknikunnátta og færni á Excel
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
- Góð samskiptahæfni og mikil þjónustulund
Fríðindi í starfi
- Að vera hluti af frábæru teymi ráðgjafa í mannauðs- og launalausnum
- Gagnkvæmt traust og sveigjanleiki
- Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf
- Vinnustaður sem leggur áherslu á heilsu og býður upp á frábært mötuneyti
- Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.
- Hvatning til að þróast í starfi og efla þekkingu
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur6. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaLaunavinnslaMicrosoft ExcelNákvæmniSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Sérfræðingur í mannauðs- og launamálum
Matvælastofnun

Tæknilegur mannauðsráðgjafi
Corus ehf

Sérfræðingur í mannauðsmálum
Landsnet hf.

Mannauðsráðgjafi
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

HR Coordinator - Temporary position
JBT Marel

Mannauðsráðgjafi - sumarstarf
Sumarstörf - Kópavogsbær

Launafulltrúi
Fastland ehf

Verkefnastjóri í mannauðs- og launadeild Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður

Fulltrúi í launadeild
Íslandshótel

Mannauðsráðgjafi í heimaþjónustu Austurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sérfræðingur í mannauðsmálum / HR Business Partner
Alcoa Fjarðaál