Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstofa
Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstofa
Þjónustumiðstöð kirkjunnar - Biskupsstofa

Svæðisstjóri æskulýðsmála á Austurlandi

Biskup Íslands auglýsir eftir svæðisstjóra æskulýðsmála í Austurlandsprófastsdæmi
Svæðisstjóri hefur í umboði biskups og prófasts tilsjón með æskulýðsstarfi í Austurlandsprófastsdæmi.


Helstu verkefni:
· Staðarhaldari Kirkjumiðstöðvar Austurlands sem staðsett er á Eiðum. Umsjón með daglegum rekstri s.s. bókhaldi í samstarfi við prófast.
· Sumarbúðarstjóri sumarbúða að sumri og fermingabúða að hausti, skipulag og starfsmannaráðningar sem tengjast þeim.
· Tilsjón og heildaryfirsýn með verkefnisstjórum æskulýðsmála og æskulýðsleiðtogum sem starfa fyrir kirkjurnar í Austurlandsprófastsdæmi. Starfar með starfsfólki sem sér um æskulýðsstarf í sóknum.
· Stuðningur og ráðgjöf við presta og aðra varðandi æskulýðsmál.
· Skipulagning æskulýðsmóta og annarra viðburða.
· Utanumhald um Leiðtogaskólann á svæðinu.
· Samstarf við fræðslusvið Þjóðkirkjunnar og aðra svæðisstjóra æskulýðsmála.
· Svæðisstjóri kynni sér stefnumörkun og samþykktir kirkjuþings s.s. fræðslustefnu þjóðkirkjunnar varðandi kirkjulegt starf fyrir ungmenni og vinnur í samræmi við samþykktir héraðsnefndar svæðisins.
· Önnur tilfallandi verkefni í samráði við prófast.

Menntunar og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. kennslufræði eða guðfræði
Hæfni í samskiptum
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð íslenskukunnátta
Reynsla af starfi með börnum og ungmennum
Reynsla af rekstri sumarbúða er kostur
Reynsla af bókhaldi er kostur


Aðrar upplýsingar
Um er að ræða 100% starf.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 13. maí 2025.

Áskilið er hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur þjóðkirkjunnar. Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Tengil á eyðublaðið er að finna hér.


Nánari upplýsingar um starfið veita sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir prófastur Austurlandsprófastsdæmis, [email protected] eða í síma 698 4958.
Biskupsstofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar Þjóðkirkjunnar og Fræðagarðs.

Staðsetning: Skrifstofa svæðisstjóra er á safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4 eða Kirkjuseli Ássóknar, Smiðjuseli 2.

Starfið er laust frá 1. ágúst 2025.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir starfsferli og starfsreynslu, jafnframt skal fylgja afrit af prófskírteini eða staðfestingu á annarri menntun og þjálfun, eins og við á.
Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.



Auglýsing birt28. apríl 2025
Umsóknarfrestur13. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4
Kirkjusel Ássóknar, Smiðjuseli 2
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar