
Sumarstörf í Víking Brugghús 2026
Við hjá Víking brugghús erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Aldurstakmark er 18 ára og vinnutíminn er mismunandi eftir störfum. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.
Störf í boði
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af vörum Coca-Cola og aðrir starfsmannaafslættir
- Frábært mötuneyti
- Aðgangur að ráðgjafaþjónustu svo sem sálfræði- og félagsráðgjöf að kostnaðarlausu
Hafir þú áhuga á að starfa með okkur í sumar þá endilega sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast, því hvetjum við áhugasama að sækja um sem fyrst.
Ráðningarferlið getur tekið mislangan tíma. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.
Umsóknarfrestur 1. mars 2026
Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar veitir Eggert Sigmundsson [email protected] en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.
Enska
Íslenska










