
Norðurál
Norðurál, sem rekur álver á Grundartanga, var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins. Framþróun grænnar álframleiðslu mun hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúslofttegunda á heimsvísu. Íslenski áliðnaðurinn er ein stærsta útflutningsgrein landsins og ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
Álið okkar, Natur-Al, skilur eftir sig eitt minnsta kolefnisspor í heimi. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor áls frá Norðuráli einungis um fjórðung af heimsmeðaltalinu. Við stefnum að því að verða fyrsta álver í heiminum sem framleiðir kolefnishlutlaust ál.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi og lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda.
Hjá Norðuráli starfa um 600 fastráðin, þar af 350 í vaktavinnu, 150 sérfræðingar með fjölbreytta menntun og 100 í iðnaðarstörfum. Til viðbótar eru um 150 í afleysingum.
Norðurál er ASI vottað sem staðfestir að fyrirtækið stenst ítrustu kröfur um samfélagslega ábyrgð, heiðarlega viðskiptahætti, umhverfisvænt hráefni og framleiðslu. Gæðastjórnunarkerfi Norðuráls er vottað samkvæmt alþjóðlega ISO 9001 staðlinum og umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins eru vottuð samkvæmt ISO 14001 og ISO 45001 stöðlum. Norðurál er jafnlaunavottað fyrirtæki og er handhafi gullmerkis PWC.

Spennandi sumarstörf í framleiðslu
Norðurál leitar að metnaðarfullu og ábyrgu fólki í fjölbreytt sumarstörf í ker- og steypuskála og í skautsmiðju. Störfin henta öllum kynjum. Þú þarft að hafa náð 18 ára aldri og hafa gild ökuréttindi. Vilt þú starfa með okkur á Gundartanga í sumar?
Unnið er á þrískiptum átta tíma vöktum í kerskála og steypuskála (fimm daga vinna/fimm daga frí) og tólf tíma vöktum í skautsmiðju. Launin eru fín og starfsfólki bjóðast ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu upp á Grundartanga.
Við leggjum áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Sumarstarfsfólk fer í markvissa þjálfun í upphafi starfstíma, þar sem höfuðáhersla er lögð á öryggi og þekkingu á vinnuumhverfi og tækjabúnaði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- 18 ára lágmarksaldur
- Mikil öryggisvitund og árvekni
- Heiðarleiki og stundvísi
- Góð samskiptahæfni
- Dugnaður og sjálfstæði
- Bílpróf er skilyrði
Fríðindi í starfi
- Ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu
- Vinnuvélaréttindi
Auglýsing birt30. janúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiHreint sakavottorðMannleg samskiptiÖkuréttindiStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Framleiðslustarf | Bionic Technician
Embla Medical | Össur

Spennandi sumarstörf 2026 / Exciting Summer Jobs 2026
Alcoa Fjarðaál

Starf í boði í Reykjanesbæ
Urta Islandica ehf.

Prentari - framleiðsla umbúða
Vörumerking ehf

Viltu bætast í hóp framleiðslusviðs Set á Selfossi?
Set ehf. |

Framtíðarstarf í ker- og steypuskála
Norðurál

Almennur starfsmaður í úrbeiningardeild
Ali

Viltu vinna með okkur í sumar?
Set ehf. |

Sumarstörf í framleiðslu
Ölgerðin

Framleiðslutæknir - Manufacturing Technologist
Alvotech hf

Framtíðarstarf á lager og framleiðslu
Tandur hf.

Framtíðarstarf á lager, í framleiðslu og útkeyrslu
Tandur hf.