
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnun hefur umsjón með stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, fasteigna, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála, skipulagsmála og mála er varða byggingarvörur og brunavarnir.
Stofnuninni er ætlað að stuðla að því að jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði, m.a. með húsnæðisstuðningi, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Einnig skal stofnunin leitast við að tryggja að almenningur hafi aðgang að öruggu og vistvænu húsnæði á viðráðanlegu verði og í samræmi við þarfir hvers og eins, óháð efnahag og búsetu, þannig að almenningur hafi raunverulegt val um búsetuform.
Stofnunin gegnir jafnframt samræmingarhlutverki, sinnir samstarfi við sveitarfélög um stjórnsýslu húsnæðis-og mannvirkja- og skipulagsmála og stuðlar að fyrirsjáanleika, skilvirkni og gæðum mannvirkjagerðar. Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnun annast umsýslu Húsnæðissjóðs. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru í Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki og eru starfsmenn 190 talsins.

Sumarstörf hjá HMS (Norðurlandi)
Viltu vinna með okkur í sumar?
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, nýsköpun, miðlun upplýsinga og stafræna þróun, og ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum á sviði húsnæðis, fasteigna og mannvirkja? Þá gæti sumarstarf hjá HMS verið fyrir þig.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingum í fjölbreytt sumarstörf á sviðum fasteigna, leigumarkaðar og þjónustuvers.
Aðilar munu vinna með frábærum sérfræðingum á sínum sviðum og fá dýrmætt tækfæri til að öðlast innsýn og þekkingu á árangursdrifinni starfsemi HMS.
Sumarstörfin eru ýmist með starfstöðvar á Akureyri eða Sauðárkróki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- HMS leitast við að ráða framúrskarandi starfsfólk með fjölbreyttan bakgrunn.
- Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.
- Skipulagshæfni og nákvæmni.
- Jákvæðni og rík þjónustulund.
Auglýsing birt7. febrúar 2024
Umsóknarfrestur1. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Árborg 1, 550 Sauðárkróki
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Fullt Starf í Versluninni Sportís
Sportís ehf

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Frábært skrifstofustarf í boði -Skrifstofa stéttarfélaganna-
Framsýn,stéttarfélag