SÁÁ samtök
SÁÁ samtök
SÁÁ samtök

Sumarstörf 2026 - nemi í hjúkrunarfræði

Laus eru til umsóknar sumarstörf fyrir nema á öðru og þriðja ári í hjúkrunarfræði sumarið 2026 við sjúkrahúsið Vog að Stórhöfða 45. Hjúkrunarvakt á sjúkrahúsinu Vogi sinnir skjólstæðingum í afeitrun og inniliggjandi meðferð. Unnið er í þverfaglegu teymi og áhersla er lögð á góðan starfsanda og stöðugar umbætur. Í boði er fjölbreytt tækifæri til að vaxa og læra í starfi með þátttöku í bæði inniliggjandi- og göngudeildarþjónustu SÁÁ. Hjúkrunarfræðingar eru virkir þátttakendur í mótun framtíðarsýnar og eflingu hjúkrunar innan SÁÁ þar sem lögð er áhersla á gæði og árangur þjónustunnar. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um og mikilvægt er að umsókn sé vel útfyllt og með umsókn fylgi staðfest yfirlit yfir lokin námskeið með ECTS einingum. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • vaktstjórn, þjónusta, innskrift og hjúkrunarmeðferð sjúklinga á legudeild Vogs
  • þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu, fræðslu og sálfélagslegri meðferð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • að hafa lokið öðru námsári í hjúkrunarfræði
  • áhugi á hjúkrun og meðferð skjólstæðinga með fíknivanda
  • vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
  • góð færni í mannlegum samskiptum og skipulögð vinnubrögð
  • áhugi og þekking á skaðaminnkandi hugmyndafræði er kostur
  • sveigjanleiki og hæfni til að aðlaga þjónustu að fjölbreyttum þörfum notenda
Fríðindi í starfi
  • sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar