Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Sumarstarf - Þjónustustjóri í heimaþjónustu

Sumarstarf þjónustustjóra

Starf þjónustustjóra felst í að annast daglega skipulagningu heimaþjónustu í samvinnu við starfsmenn og þjónustuþega. Félagsleg heimaþjónusta hefur það markmið að aðstoða notendur sem geta ekki séð um heimilishald án utanaðkomandi aðstoðar. Þjónustan felur í sér aðstoð við heimilishald, s.s. þrif, aðstoð við innkaup sem og félagslegan stuðning og hvatningu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stýra daglegri framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu
  • Taka á móti umsóknum um félagslega heimaþjónustu
  • Veita upplýsingar um þjónustu til þjónustuþega, aðstandenda og annarra samstarfsaðila
  • Halda utan um starfsmannamál

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Reynsla af stjórnun er nauðsynleg
  • Góð tölvufærni er nauðsynleg
  • Skipulögð vinnubrögð, stundvísi, sjálfstæði og lausnamiðuð nálgun

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar þurfa að skila sakavottorði eða veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.

Um er að ræða 100% starf.

Ráðningartími er frá 15. maí til 31. ágúst 2020.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Anna Klara Georgsdóttir, deildarstjóri þjónustu- og ráðgjafardeildar aldraðra

Auglýsing birt8. febrúar 2020
Umsóknarfrestur29. febrúar 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar