
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Sumarstarf í félagsmiðstöð í Kópavogi
Félagsmiðstöðin Kjarninn í Kópavogavogsskóla óskar eftir frístundaleiðbeinenda í lifandi og spennandi starf í sumar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Diplómanám í uppeldis-eða tómstundafræðum æskileg.
Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
Tungumálakunnátta æskileg.
Helstu verkefni og ábyrgð
Frístundaleiðbeinandi hefur umsjón með og skipuleggur hópastarf og verkefni tengd menningar, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvarinnar.
Hann vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.
Auglýsing birt19. mars 2020
Umsóknarfrestur31. mars 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri frístundastarfs
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Frístundaleiðbeinendur
Salaskóli

Leikskólinn Akrar -leikskólakennari
Leikskólinn Akrar

Leikskólinn Lækur óskar eftir leikskólakennara
Lækur

Laus staða leikskólakennara
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Sérkennsla/atferlisfræðingur í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Sérkennsla í leikskólanum Heiðarborg
Leikskólinn Heiðarborg

Stuðningsfulltrúi óskast á miðstig
Kársnesskóli

Klettaskóli-Korpu - stuðningsfulltrúi
Klettaskóli

Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur í frístundaheimilum í Laugardals-, Háaleitis- og Bústaðahverfi
Kringlumýri frístundamiðstöð