

Klettaskóli-Korpu - stuðningsfulltrúi
Klettaskóli-Korpu leitar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í hlutastarf.
Klettaskóli-Korpu er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og aðrar fatlanir á aldrinum 13-16 ára og þjónar öllu landinu. Eitt af hlutverkum skólans er að veita starfsfólki annarra grunnskóla ráðgjöf og kennslufræðilegan stuðning vegna nemenda sem hafa svipaðar námsþarfir og nemendur í Klettaskóla. Einstaklingsmiðun er í námi nemenda Klettaskóla, byggt er á forsendum hvers nemanda og styrkleikum þeirra. Einkunnarorð skólans eru "Menntun fyrir lífið".
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningur við nemendur í skólastarfi
Aðstoða nemendur eftir þörfum hvers og eins við athafnir daglegs lífs.
Auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum.
Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skólans.
Hæfniskröfur
Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Góð íslenskukunnátta.
Hæfni til að vinna í teymi
Stundvísi er mikilvæg
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameyki
Ráðningarform
Tímabundin ráðning
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Elín Arndís Gunnarsdóttir
Tölvupóstur
Sími
411-7250
Klettaskóli-Korpu
Barðastöðum 2
112 Reykjavík
Íslenska










