

Stuðningsfulltrúi í Kerhólsskóla
Kerhólsskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa út skólaárið 2026 - 2027 í 80-100% starfshlutfall.
Í skólanum eru um 90 nemendur í frá eins árs og upp í 10. bekk. Í Kerhólsskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu og útinám. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði „Uppeldi til ábyrgðar“. Leitað er eftir sjálfstæðu og drífandi fólki með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi.
Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur náms- og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Stuðningsfulltrúar gegna mikilvægu hlutverki sem fyrirmyndir og þurfa að geta lesið í aðstæður og brugðist við með viðeigandi hætti. Í starfi stuðningsfulltrúa er einum nemanda ýmist fylgt eftir eða farið á milli bekkja og fleiri nemendum sinnt. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við kennara og sérkennara.
- Aðstoða nemendur við að vera virkir í skólastarfi
- Styrkja jákvæða hegðun nemenda
- Aðstoða nemendur við athafnir daglegs lífs ef þörf er á
- Styðja nemendur í félagslegum samskiptum
- Fylgja og aðstoða nemendur í vettvangsferðum
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
- Aðstoða nemendur við athafnir daglegs lífs ef þörf er á
- Styðja nemendur í félagslegum samskiptum
- Fylgja og aðstoða nemendur í vettvangsferðum
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
- Reynsla af starfi með börnum æskileg
- Framhaldsskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Áhugi og metnaður fyrir starfi með börnum
- Ábyrgð í starfi og stundvísi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Þolinmæði og góð samskipta- og samstarfshæfni
- Skipulagshæfileikar
- Góð íslenskukunnátta
Íslenska










