Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða leikskólaliði óskast til starfa

Leikskólinn Barnaborg í Aðaldal á Norðurlandi leitar að áhugasömum sérkennara, þroskaþjálfa eða leikskólaliða í framtíðarstarf. Barnaborg er hluti af Þingeyjarskóla, samreknum grunn- og leikskóla í Þingeyjarsveit. Í starfi skólans er lögð áhersla á að hlúa að sjálfsprottnum leik barnanna, öruggum tengslum barna við umönnunaraðila og virðingu fyrir öllum í leikskólastarfinu. Sjá nánar á: www.thingeyjarskoli.is

  • Um er að ræða 80-100% framtíðarstarf
  • Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
  • Aðstoð veitt við að finna húsnæði í nágrenni skólans.
  • Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2026
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita stuðning og leiðsögn við börn með félagslegar áskoranir og/eða frávik í þroska með áherslu á samleik, jákvæð samskipti og þátttöku í barnahópnum.
  • Sinna einstaklingsmiðaðri færniþjálfun með áherslu á almenna færni, fín- og grófhreyfingar og sjálfsbjörg.
    Veita ráðgjöf og stuðning við deildarstjóra og annað starfsfólk varðandi skipulag og útfærslu á námi og umönnun barna með sérþarfir.
  • Veita ráðgjöf og stuðningu við kennslu í grunnskóladeild Þingeyjarskóla eftir þörfum hverju sinni
  • Hafa umsjón með gerð einstaklingsnámskráa, áætlana og aðlögun námsefnis í samvinnu við deildarstjóra og leikskólastjóra
  • Vinna að almennu uppeldi og menntun barna samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þroskaþjálfamenntun, sérkennaramenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og jákvætt viðmót í starfi með börnum.
  • Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta til að geta átt í hnökralausum samskiptum við börnin og stutt við málþroska þeirra.
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg.
  • Hreint sakavottorð (fylgi umsókn).
Fríðindi í starfi
  • Heilsueflingarstyrkur Þingeyjarsveitar til starfsfólks sveitarfélagsins
  • Gott jóla- og páskafrí.
  • Styttri vinnuvika. 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí t.d. í dymbilviku og milli jóla- og nýárs.
  • Sveitarfélagið hefur innleitt 4-5 skráningardaga á hverju starfsári sem gefur aukið svigrúm til undirbúnings og samráðs um vinnuna.
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur18. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarskóla
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar